Allar helgar bókaðar undir brúðkaup í sumar Snærós Sindradóttir skrifar 19. janúar 2016 07:00 Allar helgar eru bókaðar undir brúðkaup í Dómkirkjunni í sumar. Suma daga verða fjögur brúðkaup í kirkjunni og margir farnir að huga að 2017. Fréttablaðið/Daníel
Örfá pláss eru eftir í Dómkirkjunni í Reykjavík fyrir brúðkaup í sumar. Tilvonandi brúðhjón eru nú þegar farin að bóka athafnir árið 2017. „Ég er búin að vera hér í fjögur ár og mér finnst að kirkjubrúðkaupum sé að fjölga allt árið. Um síðustu helgi voru tvö brúðkaup,“ segir Hrafnhildur Helgadóttir, kirkjuvörður í Dómkirkjunni. Hún segir að marga laugardaga séu fjögur brúðkaup sama daginn. Að minnsta kosti einn og hálfur tími líður á milli athafna. „Ef fólk er með fyrir fram mótaðar hugmyndir og vill láta alla drauma rætast, og Dómkirkjan er þar á meðal, þá myndi ég ekki draga það að bóka.“Sveinn Valgeirsson, dómkirkjupresturSautjándi júní er á föstudegi í ár svo tvö brúðkaup fara fram í kirkjunni fimmtudaginn 16. júní. Hátíðisdagar á borð við þjóðhátíðardaginn og menningarnótt gera brúðhjónum erfitt fyrir. Hrafnhildur nefnir meðal annars Druslugönguna í því samhengi. „Við viljum ekki að það komi truflun frá Austurvelli en núna er ansi mikið að gera á Austurvelli á laugardögum. Okkar draumur er að fólk færi sig á Ingólfstorg eða í Hljómskálagarðinn.“ Séra Sveinn Valgeirsson dómkirkjuprestur segir að álagið sé ekki svo mikið á prestana tvo sem þjóna við kirkjuna. Brúðhjón velji sér alla jafna prest sjálft og komi með hann. Hann segir að svo virðist sem margir eigi tengingu við kirkjuna. „Þó sóknarvitundin sé ekki meiri þar en annars staðar þá er hún frekar áberandi kirkja á hátíðardögum. Hún er falleg og ákveðin höfuðkirkja.“ Hann segir að þrátt fyrir að rannsóknir sýni minnkandi kirkjusókn og trúrækni Íslendinga þá sé fátt sem stoppi þá í að láta pússa sig saman í kirkju. „Mér finnst ósköp vænt um það að þegar kemur að þessu þá séu hefðirnar sterkar í fólki og það vilji sækja í kirkju til að fá þessa blessun. En þú sérð þetta frekar í tónlistarvalinu. Fólk vill fá lög sem það tengir meira við en sálma. Það er bara tíðarandinn. Ég hef aldrei orðið var við að fólk vilji vera laust við blessun og fyrirbænir.“
Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Simmi vinsælasti leynigesturinn Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Innlent Gummi lögga er maður ársins 2025 Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent Fleiri fréttir Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Sjá meira