Hvernig samfélag viljum við? Páll Valur Björnsson skrifar 7. janúar 2016 07:00 Fyrir nákvæmlega hundrað árum síðan, við upphaf ársins 1916, stóð fyrri heimsstyrjöldin sem hæst. Og þegar henni lauk árið 1918 höfðu meira en 17 milljónir manna látið lífið. Þar af a.m.k. 9 milljónir hermanna, oftast strákar sem voru á bilinu 19 til 22 ára þegar styrjöldin hófst árið 1914. Þá særðust um 15 milljónir hermanna, misstu útlimi eða sjón og margar milljónir komu stórskaddaðir á sál úr þessu skelfilega stríði, sviptir öllum lífsgæðum og oft lífsviljanum líka. Um þetta má lesa í stórfróðlegri bók Gunnars Þórs Bjarnasonar, sagnfræðings, sem kom út fyrir jólin. Og á þessu báru alla ábyrgð þeir stjórnmálamenn sem mestu réðu í voldugustu ríkjum Evrópu. Hvílík þjáning og hvílík sóun og hvílík ógæfa sem þessir stjórnmálamenn bera ábyrgð á. Að mínu mati hafa stjórnmálamenn það eina hlutverk og þá einu skyldu að gera það sem í þeirra valdi stendur til að bæta lífsgæði fólks í nútíð og framtíð og að tryggja því sem jöfnust tækifæri. Ég er sannfærður um að þjóðfélag þar sem sátt er um það meginmarkmið að tryggja fólki og fyrirtækjum sem jöfnust tækifæri tryggir líka almenna velmegun, framtak og framþróun, sátt, sanngirni og mannúð og stuðlar að stórbættum lífsgæðum fólks og hamingju. Fólk sem býr við þannig aðstæður beitir ekki annað fólk ofbeldi og þjóð sem býr við þær aðstæður ræðst ekki á aðrar þjóðir. Nú segja sjálfsagt einhverjir sem þetta lesa að þetta sé nú ekki stórmerkileg speki hjá mér og sumir telja mig örugglega óttalega einfaldan að trúa að þetta geti einhvern tíma orðið og aðrir segja mjög líklega að þetta sé svo sjálfsagt að það þurfi ekki að skrifa um þetta. En ég er fullkomlega ósammála þeim sem þannig hugsa. Það er nefnilega því miður svo að of margir stjórnmálamenn líta alls ekki á það sem meginskyldu sína að vinna að bættum lífsgæðum alls almennings í nútíð og framtíð og jöfnum tækifærum fólks og fyrirtækja eða þeir gera þá a.m.k. eitthvað allt annað en þeir hugsa og segja og vilja. Jöfn tækifæri Við sem störfum í Bjartri framtíð teljum að viljum skipuleggja þjóðfélagið þannig að allir landsmenn hafi jöfn tækifæri til að nýta margbreytilega hæfileika sína sjálfum sér og okkur öllum til framdráttar og leggjum áherslu á að allt þetta sé gert í fullkominni sátt við náttúruna og umhverfið, með sjálfbærni og ábyrgð og langtímahagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Við viljum vera virkir þátttakendur í því og leggja okkar af mörkum við að byggja hér upp lifandi efnahags- og velferðarkerfi sem býr við heilbrigt samkeppnisumhverfi sem hvetur fjárfesta og frumkvöðla til framtaks, athafna og fjárfestinga sem munu skapa ótal tækifæri, tækifæri sem munu gera okkur öllum kleift að fá vinnu sem henta okkar margvíslegu hæfileikum og áhugamálum.Enga fordóma Við í Bjartri framtíð viljum leggja okkar lóð á vogarskálarnar til þess að hér verði auðvelt að lifa og starfa fyrir alla og allir fái tækifæri til að taka þátt og leggja sitt af mörkum án þess að þurfa að þola mismunun og fordóma. Þetta hefur alltaf verið mikilvægt en þó aldrei sem nú á þessum tímum fjölmenningar og margbreytileika mannlífsins og allra þeirra stórkostlegu tækifæra sem því fylgja. Við þurfum að hafa vit á að nýta þessi tækifæri en reisa ekki veggi og óþarfar, gagnslausar hindranir fyrir okkur sjálf og aðra með fordómum og þröngsýni. Gríðarstórt skref í þá átt væri að fullgilda og hrinda vel í framkvæmd samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Annað stórt skref í þessa átt væri að fullgera og samþykkja stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára sem lögð var fram á Alþingi í haust. Með velunninni stefnu tryggjum við að þeir sem eiga við geðheilbrigðisvanda að etja fái viðeigandi þjónustu hratt og örugglega. Sérstaklega eigum við að leggja höfuðáherslu á að efla forvarnir og mæta börnum sem eiga við ýmis konar geðraskanir að stríða strax á fyrstu stigum.Áskoranir En að byggja hér upp samfélag sem verður besta útgáfan af sjálfu sér er mikil áskorun; áskorun sem krefst kjarks og þátttöku allra þeirra sem þetta samfélag byggja. Þátttöku stjórnvalda, sveitarfélaga, atvinnulífsins, fræðasamfélagsins, hvers konar samtaka og félaga og ekki síst alls fólksins sem í landinu býr, ungra og gamalla , kvenna og karla. Til þess að ná sem bestum árangri í þeirri viðleitni okkar að skapa samfélag sem setur framfarir og hag almennings í forgrunn verðum við að að tilbúin til og hafa kjark til að leita allra leiða til að leggja til hliðar ágreiningsefnin. Þau geta auðvitað verið mýmörg ef við viljum svo hafa. Við eigum ekki að einblína á það sem skilur okkur að, okkur greinir á um og sundrar okkur heldur eigum við að horfa fyrst og fremst á það sem við eigum sameiginlegt og hvernig við getum eflt og styrkt það sem sameinar okkur.Leiðarljós til framtíðar Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir m.a. að samfélag sé samvinnuverkefni þar sem öll störf skipta máli og haldast í hendur og mikilvægt er að hlúð sé að þeim sem þurfa á aðstoð að halda. Að fólk fái notið árangurs erfiðis síns og hugkvæmni og ekki síst að aldraðir skulu njóta öryggis og velferðar og þá skuli öllum skal tryggð hlutdeild í þeirri verðmætasköpun sem Ísland og íslenska þjóðin getur af sér. Unnið verði að því að tryggja jafnrétti allra landsmanna, óháð einstaklingsbundnum þáttum og stöðu að öðru leyti Þar stendur einnig að ríkisstjórnin ætli að leitast við að virkja samtakamátt þjóðarinnar og vinna gegn því sundurlyndi og tortryggni sem einkennt hefur íslensk stjórnmál og umræðu í samfélaginu um nokkurt skeið. Þetta finnst mér að ætti að vera leiðarljós okkar allra á komandi ári og ætti ekki að vera mikið mál ef við erum samhuga og einlæg í því að láta það gerast. Aðstæður eru til þess og tækfærin eru þarna öll ef við bara nýtum þau en klúðrum þeim ekki með sundurlyndi, eigingirni og þröngsýni. Ég óska landsmönnum öllum gleðilegs og farsæls árs og hvet okkur öll til að láta það ár sem nú er að hefjast marka upphaf þess að við byggjum saman upp þjóðfélag jafnra tækifæra, sáttar og sanngirni.Pistill leiðréttur 8. janúar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Sigurður H. Einarsson Skoðun Vöknum, foreldrar, afar og ömmur! Jón Pétur Zimsen Skoðun Á nú að hafa af manni fullveldið? Eiríkur Hjálmarsson Skoðun Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Óttinn við nei-ið Gunnar Ármannsson Skoðun Glæpahundurinn Jónatan Ljónshjarta Heimir Eyvindarson Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen Skoðun Um siðferði og veiði Runólfur Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Efnahagslegur raunveruleiki: Ísland dregst enn frekar aftur úr smáríkjum innan Evrópusambandsins Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar Skoðun Íran og Hormuz-sund Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Samfélagið treystir á öfluga fráveitu Brynja Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Heiðarleiki og raunhæfar lausnir Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Sundlaugar Reykjavíkur þurfa málefnalega pólitíska umræðu Brá Guðmundsdóttir,Björn Berg Pálsson,Drífa Magnúsdóttir,Ellen Elísabet Bergsdóttir,Hafliði Páll Guðjónsson,Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir,Snorri Örn Arnaldsson,Vala Bjarney Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að vera rétt tengdur eða bara „íbúi“? Guðrún M. Njálsdóttir skrifar Skoðun Um siðferði og veiði Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Bærinn okkar allra - Af hverju skiptir hann máli? Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samgöngur sem virka fyrir Hafnarfjörð Signý Jóna Tryggvadóttir skrifar Skoðun Þegar lögbundin réttindi skila sér ekki til barna og ungmenna Fjóla María Ágústsdóttir,Þóra Björg Jónsdóttir skrifar Skoðun Að kaupa burt vandann Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Á nú að hafa af manni fullveldið? Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun ,,En fatlað fólk er svo dýrt!’’ Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar Skoðun Óttinn við nei-ið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Svartfuglavilla í Ráðhúsinu: Þegar flokkssystkinin klappa hvert öðru á bakið á kostnað útsvarsins og hækkaðra gjalda Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gervigreind og fullveldi Linda Heimisdóttir,Vilhjálmur Þorsteinsson skrifar Skoðun „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Vöknum, foreldrar, afar og ömmur! Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Glæpahundurinn Jónatan Ljónshjarta Heimir Eyvindarson skrifar Skoðun Ég hef borgað í áratugi af húsnæðisláni en skulda samt Sigurður H. Einarsson skrifar Skoðun Bestum borgina með fólkið í forgrunni Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Velferðin og valkyrjurnar Rósalind Signýjar Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Um stafrænt skólaumhverfi barna í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar Skoðun Fögnum úrbótum án afslátta Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Hver er raunmæting íslenskra grunnskólanema? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Áhrifum fylgir ábyrgð Ása Valdís Árnadóttir skrifar Skoðun Að kljúfa þjóð í herðar niður Ingólfur Sverrisson skrifar Sjá meira
Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun
Skoðun Efnahagslegur raunveruleiki: Ísland dregst enn frekar aftur úr smáríkjum innan Evrópusambandsins Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar
Skoðun Sundlaugar Reykjavíkur þurfa málefnalega pólitíska umræðu Brá Guðmundsdóttir,Björn Berg Pálsson,Drífa Magnúsdóttir,Ellen Elísabet Bergsdóttir,Hafliði Páll Guðjónsson,Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir,Snorri Örn Arnaldsson,Vala Bjarney Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Þegar lögbundin réttindi skila sér ekki til barna og ungmenna Fjóla María Ágústsdóttir,Þóra Björg Jónsdóttir skrifar
Skoðun Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Einar Jóhannes Guðnason skrifar
Skoðun Svartfuglavilla í Ráðhúsinu: Þegar flokkssystkinin klappa hvert öðru á bakið á kostnað útsvarsins og hækkaðra gjalda Davíð Bergmann skrifar
Skoðun „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Upp úr reyknum rísi Fönix hins nýja Landspítala, fullt af nýjum hjúkrunarheimilum og allt verður frábært...eða hvað? Bryndís Logadóttir skrifar
Skoðun Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Berglind Ósk Guttormsdóttir,Halldór Grétar Einarsson,Þorsteinn Hjartarson skrifar
„Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Sundlaugar Reykjavíkurborgar – afturför og sóðaskapur Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun