Erlent

Maður skotinn til bana fyrir utan lögreglustöð í París

Atli Ísleifsson skrifar
Maðurinn var skotinn fyrir utan lögreglustöðina sem er í 18. hverfi.
Maðurinn var skotinn fyrir utan lögreglustöðina sem er í 18. hverfi. Vísir/AFP
Lögregla í París skaut í morgun vopnaðan mann til bana þegar hann reyndi að komast inn á lögreglustöð í 18. hverfi í norðurhluta Parísarborgar.

Í frétt BBC kemur fram að maðurinn hafi hrópað „Allahu Akbar“ fyrir utan lögreglustöðina í Goutte d'Or, nærri Montmatre, þar sem lögregla skaut hann.

Fréttir hafa borist að maðurinn hafi verið vopnaður hnífi og reynt að komast inn á lögreglustöðina. Þá segir að hann hafi verið klæddur einhverju sem líktist sprengjuvesti.

Francois Hollande Frakklandsforseti ávarpaði í morgun lögreglumenn borgarinnar í tilefni þess að ár er í dag liðið frá árásunum á ritstjórnarskrifstofur Charie Hebdo.

Hvatti hann lögreglu og öryggissveitir til að samræma vinnu sína og skiptast á upplýsingum. Þá sagði forsetinn að fjölgað yrði í lögreglu og öryggissveitum á árinu.

Sautján manns létust í árásunum á skrifstofur Charlie Hebdo og matvöruverslun fyrir gyðinga í borginni, dagana 7. til 9. janúar á síðasta ári.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×