Erlent

Skutu á rútu með ferðamönnum nærri píramídunum í Giza

Atli Ísleifsson skrifar
Nokkrar skemmdir urðu á hótelinu Three Pyramids í Giza í árásinni.
Nokkrar skemmdir urðu á hótelinu Three Pyramids í Giza í árásinni. Vísir/EPA
Enginn særðist þegar grímuklæddir menn skutu á rútu með ferðamönnum nálægt píramídunum fyrir utan egypsku höfuðborgina Kaíró í morgun.

Talsmaður egypsku lögreglunnar greinir frá því að árásarmennirnir, sem voru tveir talsins, hafi verið gripnir. Nokkrar skemmdir voru unnar á framhlið Three Pyramids hótelinu í Giza í árásinni.

Árásum íslamskra vígamanna hefur fjölgað í Egyptalandi síðustu mánuði, allt frá því að Muhammed Mursi var hrakinn úr stóli forseta fyrir tveimur árum.

Hryðjuverkamenn, sem margir hafast við á Sinai-skaga, hafa drepið fleiri hundruð lögreglumanna og hermanna síðustu mánuði, auk þess að sprengjuárásir hafa verið gerðar í höfuðborginni Kaíró.

Píramídarnir í Giza eru einn vinsælasti ferðamannastaður Egyptalands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×