101 boys leikstýra söngleik í MR Stefán Þór Hjartarson skrifar 17. nóvember 2016 11:15 Jóhann Kristófer og Sigurbjartur Sturla með þau Ólaf Björn Sverrisson og Maríu Kristínu Árnadóttur, aðalleikara í sýningunni, á milli sín. Mynd/Egill Ástráðsson
Þeir Sigurbjartur Sturla Atlason og Jóhann Kristófer Stefánsson leikstýra söngleiknum High School Musical í MR. Logi Pedro Stefánsson sér um að semja og útsetja tónlistina og því má segja að það sé ákveðin Sturlu Atlas-stemming ríkjandi í söngleiknum. „Við Jói kláruðum skólann og þá lá beinast við að fara í svona verkefni, við erum að leggja grundvöll að því að gera eitthvað stærra í leikhúsinu. Við fórum í viðræður við MR og þau samþykktu að fá okkur til að leikstýra,“ segir Sigurbjartur Sturla Atlason, annar af tveimur leikstjórum söngleiksins High School Musical sem nú er til sýninga í MR. Hann leikstýrir verkinu ásamt Jóhanni Kristófer Stefánssyni en þeir eru báðir nýútskrifaðir úr Listaháskóla Íslands. Um tónlistina sér Logi Pedro Stefánsson, en þeir þrír eru einnig mennirnir bak við fjöllistahópinn 101 boys og Sigurbjartur er kannski þekktari sem Sturla Atlas. „Við ákváðum strax að við ætluðum að gera High School Musical – en á sama tíma var það alveg ljóst að við myndum ekki bara gera „basic“ High School Musical söngleik, þannig að við byrjum að plotta hvernig við gætum gert þetta og ákváðum að staðfæra allan söngleikinn yfir á MR, þannig að þetta er í raun Herranótt Musical eða MR Musical. Síðan fórum við inn í þetta ferli – ég hef gert alveg slatta af því að vera leikaramegin í að gera leiksýningu og Jói hefur gert það líka í skólanum, en þetta er samt í fyrsta skipti sem við höfum stjórnað svona hóp og það er auðvitað alveg ruglað dæmi – það kom okkur báðum mjög mikið á óvart. Við Jói erum sammála um að þróunin á sýningunni hafi verið frekar feit og að sýningin sé bara alveg rugluð.“ Hvernig er tónlistin, er þetta frumsamið efni eða nýttuð þið lögin úr myndinni? „Logi Pedro sér um tónlistina í þessu. Hann endurútsetti fjögur lög úr High School Musical og síðan er eitt frumsamið. Síðan ofan á það er hljóðheimur sem við Jói bjuggum til á æfingum. Besta leiðin til að lýsa þessu er kannski sú að enginn af okkur, hvorki ég, Jóhann né Logi, hefur áhuga á að gera eitthvað sem gæti talist hefðbundið eða eitthvað sem hefur sést áður í leikhúsinu, þannig að ég get lofað því að þetta er mjög ferskt. Þetta eru bara lög sem eru samin fyrir þessa mynd. Þessi lög urðu öll hörku vinsæl – eins og Breaking Free sem er í mynd númer eitt – það náði alveg í fjórða sæti á Billboard-listanum. Það sem er líka gaman er að við Jói erum báðir fæddir ’92, þannig að þegar þessar myndir komu út vorum við unglingar og þá vorum við ekki að fara að tékka á þessu, þetta var of leim. Krakkarnir sem við erum að leikstýra eru sirka fimm árum yngri og þau þekkja þetta miklu betur en við,“ segir Sigurbjartur en sýningin er sýnd í Gaflaraleikhúsinu og það eru aðeins tvær sýningar eftir – sunnudaginn 20. og miðvikudaginn 23. nóvember. Hægt er að næla sér í miða á midi.is.
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira