Nýta ólíka krafta í að búa til fegurð Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 17. nóvember 2016 18:45 Förðunarfræðingurinn Harpa Káradóttir og SnapChat-stjarnan og ljósmyndarinn Snorri Björnsson gefa út förðunarbókina Andlit. Vísir/Vilhelm „
Mig hefur lengi langað til að gefa út bók um förðun þar sem ég miðla reynslu minni og svara þeim spurningum sem ég fæ á hverjum degi í starfi mínu,“ segir Harpa Káradóttir, förðunarfræðingur og skólastjóri Mood Make Up School. Hún gefur út sína fyrstu bók, Andlit, í næstu viku. „Ég tek fyrir alls kyns vinsæla förðun sem er útskýrð í skrefum þannig að auðvelt er að fylgja eftir. Andlit er full af gagnlegum fróðleik ográðleggingum um allt sem tengist förðun,“ segir Harpa og bætir við að hún hafi viljað forðast að búa til einhverja reglubók. „Bókin er ekki full af boðum og bönnum enda er fólk ólíkt og hefur ólíkan smekk. Það er mikilvægt að nálgast förðun á eigin forsendum enda snýst góð förðun um að draga fram fegurð og eiginleika hvers og eins.“ Yfir tuttugu íslenskar konur sitja fyrir í bókinni og eru þær á öllum aldri en Harpa segist hafa viljað sýna ólíka förðun á ólíkum konum. Harpa telur að Andlit geti nýst flestum konum. „Bókin er hugsuð fyrir allan aldur og ætluð byrjendum og lengra komnum. Þú ert kannski ekki endilega að fara að lesa hana spjaldanna á milli í einum rykk, heldur er gott að glugga í hana þegar þig vantar góð ráð og hugmyndir að fallegri förðun,“ segir Harpa. Fyrirtækið Fullt tungl gefur út bókina en það er á vegum skemmtikraftsins Björns Braga Arnarssonar sem er góður vinur Hörpu. „Björn Bragi stappaði í mig stálinu og sannfærði mig um að kýla á þetta verkefni. Hann hjálpaði mér að setja saman þennan frábæra hóp sem kom að bókinni.“ Ljósmyndari bókarinnar er Snorri Björnsson sem margir þekkja betur sem eina skærustu Snapchat-stjörnu landsins. Hann starfar hins vegar sem ljósmyndari og hefur á skjótum tíma skipað sér í hóp þeirra fremstu. „Við Snorri höfum starfað mikið saman og komið að ýmsum verkefnum þannig að ég vissi vel hversu fær hann er. Útkoman varð enn betri en ég þorði að vona og þetta er afar vegleg ljósmyndabók líka,“ segir Harpa.
Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira