Áttundi sigurinn í röð hjá Aroni og félögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. febrúar 2016 17:54 Aron Pálmarsson. Vísir/EPA
Aron Pálmarsson og félagar í ungverska liðinu Veszprém KC héldu sigurgöngu sinni áfram í SEHA-deildinni í dag. Veszprém vann þá ellefu marka sigur á RK Zagreb frá Króatíu, 38-27. Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar í leiknum en þetta kom nær allt á fyrstu sextán mínútum leiksins þegar Veszprém komst í 8-4. Aron kom Veszprém-liðinu í bæði 6-3 og 7-4 og var þá einnig búinn að gefa tvær stoðsendingar á félaga sína. Eftir það bar þó ekki mikið á íslenska landsliðsmanninum. Veszprém var sex mörkum yfir í hálfleik, 18-12, munurinn var minnstur þrjú mörk í seinni hálfleiknum en sigurinn var aldrei í hættu. Lokamínúturnar voru síðan algjör einstefna hjá leikmönnum Veszprém. Cristian Ugalde var markahæstur í liði Veszprém með sjö mörk en Mate Lekai skoraði sex mörk og þeir Momir Ilic, Gasper Marguc og Renato Sulic voru allir með fjögur mörk. SEHA-deildin er deild milli bestu handboltaliða frá suðaustur hluta Evrópu en þar eru topplið frá Króatíu, Ungverjalandi, Makedóníu, Serbíu auk liða frá Hvíta-Rússlandi, Bosníu, Svartfjallalandi og Slóvakíu. Veszprém KC er komið með tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar og á auk þess leik inni á liðið í öðru sæti sem er RK Vardar. RK Zagreb átti möguleika á að minnka forystuna í tvö stig með sigri í leiknum í kvöld en er áfram í þriðja sætinu.
Handbolti Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Fleiri fréttir „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Sjá meira