Steve-O aftur á leið til Íslands Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 16. ágúst 2016 08:00 Vísir/Getty
Grínistinn Stephen Glover sem flestir kannast við undir nafninu Steve-O og þekkja einna best úr sjónvarpsþáttunum Jackass er væntanlegur hingað til lands í desember næstkomandi. „Þetta er spennandi, hann var hérna árið 2011 og þá gekk það mjög vel. Það var í Háskólabíó og þá braut hann reyndar eitthvað borð. Það er auðvitað hluti af einhverri áhættusýningu og er eins og það er,“ segir Guðbjartur Finnbjörnsson aðalsprautan á bak við komu Steve-O. Ekki nóg með það að hann hafi brotið borð þá endaði hann sýninguna á því að kveikja í sér en hann hefur lengi verið þekktur fyrir fífldirfsku og fíflaskap. Eftir að Jackass-sjónvarpsþættirnir og -myndirnar hættu í framleiðslu hefur Steve-O hafið sjálfstæðan feril og kemur nú fram með eigin uppistandssýningar. Sem stendur er hann að fara af stað með The End of the World-túr sem byggist að mestu leyti upp af uppistandi þó ekki sé loku fyrir það skotið að einhverjum áhættuatriðum bregði fyrir. „Þetta er nýtt uppistand sem hann er að fara í gang með þannig að fólk má búast við því að hlægja svolítið og svo verður líka eitthvað spennandi í gangi ef maður þekkir sinn mann,“ segir Guðbjartur og viðurkennir að hann hafi sjálfur verið aðdáandi Jackass-gengisins. Sýningin fer fram þann 22. desember, tveimur dögum fyrir jól og gæti því verið prýðileg fyrirfram jólagjöf. Kappinn kemur fram í Háskólabíói líkt og síðast og fer miðasala fram á Midi.is þann 18. ágúst.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 16. ágúst.
Mest lesið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Leikjavísir Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Lífið Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Lífið Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum Lífið „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni Fleiri fréttir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Bay segir skilið við Smith Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni Hver er Endakallinn frá Ibiza? Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Sjá meira