Íslenska ríkið þarf að greiða Guðjóni Þórðarsyni bætur Jóhann Óli Eiðsson skrifar 19. desember 2016 08:00 Guðjón Þórðarson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands Vísir/Anton
Íslenska ríkið var í Héraðsdómi Reykjavíkur síðastliðinn föstudag dæmt til að greiða Guðjóni Þórðarsyni, fyrrverandi landsliðsþjálfara Íslands í knattspyrnu, tæplega 121 þúsund krónur í skaðabætur. Að auki þarf ríkið að borga 900 þúsund krónur í málskostnað. Guðjón hafði gert kröfu um milljón króna skaðabætur og hálfa milljón í miskabætur. Forsaga málsins er nokkur. Sumarið 2013 stefndi Guðjón knattspyrnudeild Grindavíkur til greiðslu vangoldinna launa og var fallist á kröfur hans að hluta. Niðurstaða héraðsdóms var staðfest í Hæstarétti. Í millitíðinni var rekið dómsmál milli Guðjóns og fyrrverandi eiginkonu hans í tengslum við skilnað þeirra. Þar var Guðjón dæmdur til greiðslu ákveðinnar upphæðar en niðurstöðunni var áfrýjað til Hæstaréttar. Fyrrverandi eiginkona fór fram á að sú upphæð yrði löggeymd og var fallist á það. Í Hæstarétti var niðurstaða héraðsdóms ómerkt og málinu vísað heim í hérað. Nær samstundis var farið fram á kyrrsetningu umræddra eigna Guðjóns. Sú kyrrsetning féll síðar úr gildi en það dróst í þrjá mánuði hjá sýslumanni að endurgreiða Guðjóni fjárhæðina. Héraðsdómari féllst ekki á að kyrrsetningin hefði verið ólögmæt en taldi að þriggja mánaða dráttur á endurgreiðslunni til Guðjóns hefði falið í sér saknæma og ólögmæta háttsemi sýslumannsembættisins sem ríkið bæri ábyrgð á. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Guðjóns, sagði í samtali við Fréttablaðið að um prinsippmál hefði verið að ræða. Umbjóðandi hans væri ánægður með niðurstöðuna.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira