„Hvað með að bjarga flóttamönnunum?“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. janúar 2016 11:00 Hugo Brady hélt erindi í Háskóla Íslands í gær. vísir/vilhelm
Ekkert lát er á miklum straumi flóttafólks til Evrópu. Kerfið sem Evrópusambandið hefur komið sér upp til að taka á móti flóttamönnum ræður hins vegar illa við þennan mikla fjölda eins og hefur sýnt sig í mismunandi aðgerðum sem hin ýmsu lönd ESB hafa gripið til á seinustu mánuðum. Það þarf því að endurskoða kerfið, meðal annars Dyflinnarreglugerðina og hvernig hægt sé að dreifa flóttamönnum á jafnari hátt á milli landa álfunnar. Þá þarf jafnframt að virkja samkomulag við Tyrki sem felur það í sér að flóttamenn fari ekki þaðan og yfir til Evrópu, gegn því að ESB veiti Tyrklandi meðal annars fjárhagsstuðning. Hvergi í heiminum eru fleiri flóttamenn en í Tyrklandi, eða yfir 2 milljónir manna. Það er hins vegar ekki hlaupið að því að leysa vandann eins og kom fram í máli Hugo Brady, ráðgjafa Donald Tusk, forseta leiðtogaráðs ESB. Brady hélt erindi á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í gær sem bar yfirskriftina "Understanding the Syrian Refugee Crisis and EU."Ljósmynd af hinum þriggja ára Aylan Kurdi þar sem hann lá látinn í flæðarmálinu í Bodrum í Tyrklandi hreyfði mikið við heimsbyggðinni.Vísir/AFPMyndin sem breytti ölluLangflestir þeirra flóttamanna sem komu til Evrópu á seinasta ári voru frá Sýrlandi en alls komu á milli 1,2 til 1,5 milljónir flóttamanna til álfunnar í fyrra. Brady sagði að þó að ljóst væri að breyta þyrfti kerfinu til að takast á við þennan mikla fjölda þá væri það ekki svo að ESB hefði ekkert gert fyrir flóttafólk. Það hefði verið tekið á móti þeim sem komu til Evrópu auk þess sem 150 þúsund mannslífum hefði verið bjargað, aðallega á sjó. Í erindi Brady kom meðal annars fram að þegar leið smyglara sem flytja flóttafólk til Evrópu breyttist í júní í fyrra og færðist frá Ítalíu til Grikklands og Balkanskaga var ESB enn fókuserað á að veita aðstoð á svokölluðum heitum reitum á Ítalíu og að bjarga flóttamönnum frá drukknun á Miðjarðarhafi. Yfirvöld í álfunni áttuðu sig nefnilega ekki á því að leiðin inn í álfuna væri að breytast. „Smyglararnir vinna einfaldlega hraðar en ESB og það tekur líka sinn tíma fyrir 28 aðildarríki að koma sér saman um aðgerðir,“ sagði Brady meðal annars í erindi sínu í gær. Það var síðan fréttaljósmynd af Aylan litla, þriggja ára Sýrlendingi, sem drukknaði undan strönd Tyrklands sem breytti öllu, að sögn Brady. Myndin fór eins og eldur í sinu um internetið í byrjun september í fyrra en Aylan var á flótta ásamt fjölskyldu sinni vegna borgarastríðsins í Sýrlandi. Myndin vakti mikinn óhug og mikla reiði á meðal almennings í Evrópu sem átöldu stjórnvöld fyrir að gera lítið sem ekkert til að aðstoða flóttamenn. „Ekkert veldur eins miklu óöryggi hjá almenningi og flóttafólk“ Í október opnaði Angela Merkel svo landamæri Þýskalands en það var eitthvað sem enginn annar þjóðarleiðtogi hafði gert. Í sama mánuði komu 215 þúsund flóttamenn til Evrópu en aldrei fyrr höfðu svo margir komið til álfunnar í einum mánuði. Nokkrum vikum eftir að Merkel opnaði landamærin var hins vegar tekið upp eftirlit á þýsku landamærunum í samræmi við það sem leyfilegt er innan Schengen. Mikið hefur verið rætt um árásirnar sem áttu sér stað í Köln að kvöldi gamlársdags.Vísir/AFPSamúð almennings með flóttamönnum er þó afskaplega brothætt, að sögn Brady, og vísaði meðal annars í orðræðuna í kjölfar hryðjuverkaárásanna í París í nóvember síðastliðnum og árásanna í Köln á nýársnótt. Þá sé það jafnframt svo að þegar yfirvöld virðist ekki ráða við ástandið þá sé það vatn á myllu stjórnmálaafla sem tali gegn innflytjendum. „Hverjir græða á því að við eyðum tíma í að reyna að koma okkur saman um hvað skal gera? Jú, hægriöfgaflokkarnir, og það hræðir. Það er samt bara þannig að ekkert veldur eins miklu óöryggi hjá almenningi og flóttafólk. Flóttafólk veldur meira óöryggi hjá almenningi en hryðjuverkamenn,“ sagði Brady.Mikilvægt að Schengen virki Þá hafa önnur lönd gripið til þess að taka upp landamæraeftirlit innan Schengen-svæðisins vegna flóttamannastraumsins en þrátt fyrir það telur Brady ekki að Schengen sé að líða undir lok. Það þurfi þó að huga að kerfinu þannig að það geti virkað sem skyldi. „Það er sagt við okkur að við í Evrópusambandinu viljum bara bjarga kerfinu okkar? Hvað með að bjarga flóttamönnunum? Ég segi að það skiptir máli að bjarga bæði Schengen og flóttamönnunum. Með Schengen höfum við í fyrsta skipti frítt flæði fólks á milli landa Evrópu síðan fyrir fyrri heimsstyrjöldina og ég held að það sé mjög mikilvægt að halda því þannig. [...] Lykillinn að því er að tryggja ytri landamæri Evrópu og svo verðum við að geta veitt flóttafólkinu sem hingað kemur þá þjónustu sem það þarf.“ Aðildarríki ESB greinir hins vegar á um leiðir að því markmiði að tryggja ytri landamærin en Brady segir augljóst að koma þurfi reglu á hlutina þar sem ríki á borð við Grikkland ráði einfaldlega ekki við fjöldann sem þangað kemur á degi hverjum. Það sé verkefnið sem ESB standi frammi fyrir núna.
Tengdar fréttir ESB hyggst gera gagngerar breytingar á Dyflinnarreglugerðinni Tillaga um að fella frá ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar verður lögð fram í mars og er búist við miklum mótbárum frá fjölda aðildarríkja. 20. janúar 2016 10:05 Þjóðverjar herða löggjöf í kjölfar árásanna í Köln Yfirvöld segjast ætla að gera það auðveldara að vísa útlendingum sem brjóta af sér úr landi og draga til baka hæli til þeirra sem gerast sekir um kynferðisbrot. 12. janúar 2016 23:34 Þjóðverjar tóku á móti 1,1 milljón hælisleitendum á síðasta ári Fjörutíu prósent hælisleitenda komu frá Sýrlandi. 6. janúar 2016 10:35 35 smyglarar handteknir í lögregluaðgerðum í Evrópu Talið er að glæpahringurinn hafi smyglað um 1.700 manns til Evrópu í vanbúnum bátum frá Tyrklandi. 20. janúar 2016 15:29 Norðmenn senda flóttamenn aftur til Rússlands Til stendur að senda 5.500 manns yfir landamærin en þrettán voru sendir í dag. 19. janúar 2016 23:50 Mest lesið Einmana feður snúa vörn í sókn Innlent Réttarhöld yfir Margréti Löf hefjast Innlent Læknir sem sagður er kenna öllum öðrum um sviptur leyfi Innlent Ljóslaust á fjölförnum gatnamótum Innlent Lögregla í Vestmannaeyjum rannsakar mál tengt 764-glæpahópnum Innlent Sífellt yngra fólk að greinast með heilabilun Innlent Gerði lítið úr morðinu á Khashoggi á blaðamannafundi með bin Salman Erlent Umboðsmaður óskar svara um notkun lögreglu á hrákagrímum Innlent „Getum ekki setið undir því að menn séu með ögrandi framgöngu af þessu tagi“ Innlent 100 ára yfirráðum Jafnaðarmanna í Kaupmannahöfn lokið Erlent Fleiri fréttir Stærsti bæjarbruni í landinu frá 1976 Merz í vandræðum með ungliðana 100 ára yfirráðum Jafnaðarmanna í Kaupmannahöfn lokið Gerði lítið úr morðinu á Khashoggi á blaðamannafundi með bin Salman Öldungadeild samþykkir líka birtingu Epstein-skjalanna Fulltrúadeild samþykkir að birta Epstein-skjölin Úkraínskir útsendarar Rússa sagðir að baki skemmdarverkunum Hvíta húsið hlutaðist til um rannsókn á Tate-bræðrum Dregur sig í hlé af skömm vegna tengsla við Epstein Mislingafaraldurinn í Bandaríkjunum breiðir úr sér Hægri beygja Mette gæti kostað Jafnaðarmenn Kaupmannahöfn Undirrituðu viljayfirlýsingu um kaup á allt að 100 Rafale herþotum Öryggisráðið samþykkir tillögu Bandaríkjanna um framtíð Gasa Þekktir vísindamenn lögðu lag sitt við Epstein Rússar sagðir hafa drepið ekkju fyrsta fórnarlambs Tsjernobylslyssins Forsætisráðherrann fyrrverandi dæmdur til dauða Telja að lestarteinar hafi verið sprengdir viljandi í Póllandi Enn og aftur tilkynnt um dróna í Danaveldi Játuðu morð á almennum borgurum en voru aldrei sóttir til saka Kallar nú sjálfur eftir birtingu Epstein-skjalanna Loftslagskvíði geti ýtt undir fíkniefnaneyslu Kókaínkóngur handtekinn á Spáni Sonur Beckham sviptur ökuréttindum Kynna umfangsmiklar breytingar á stuðningi við hælisleitendur Bílstjóri strætisvagnsins laus úr haldi Um hundrað slösuðust og tuttugu voru handtekin á mótmælum í Mexíkó Segist hafa fengið fjölda hótana eftir að Trump hætti að styðja hana Ætlar að lögsækja BBC þrátt fyrir afsökunarbeiðni Árekstur rútu rannsakaður sem manndráp af gáleysi Árásir á lestarkerfi Úkraínu hafi þrefaldast Sjá meira
ESB hyggst gera gagngerar breytingar á Dyflinnarreglugerðinni Tillaga um að fella frá ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar verður lögð fram í mars og er búist við miklum mótbárum frá fjölda aðildarríkja. 20. janúar 2016 10:05
Þjóðverjar herða löggjöf í kjölfar árásanna í Köln Yfirvöld segjast ætla að gera það auðveldara að vísa útlendingum sem brjóta af sér úr landi og draga til baka hæli til þeirra sem gerast sekir um kynferðisbrot. 12. janúar 2016 23:34
Þjóðverjar tóku á móti 1,1 milljón hælisleitendum á síðasta ári Fjörutíu prósent hælisleitenda komu frá Sýrlandi. 6. janúar 2016 10:35
35 smyglarar handteknir í lögregluaðgerðum í Evrópu Talið er að glæpahringurinn hafi smyglað um 1.700 manns til Evrópu í vanbúnum bátum frá Tyrklandi. 20. janúar 2016 15:29
Norðmenn senda flóttamenn aftur til Rússlands Til stendur að senda 5.500 manns yfir landamærin en þrettán voru sendir í dag. 19. janúar 2016 23:50