Fyrstu sjúklingarnir kallaðir til meðferðar í næstu viku Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 23. janúar 2016 07:00 Þórarinn Tyrfingsson skrifaði undir samstarfssamninginn í gær. Mynd/Landspítali
Samstarfsverkefni íslenskra heilbrigðisyfirvalda og lyfjafyrirtækisins Gilead sem miðar að því að útrýma lifrarbólgu C á Íslandi er hafið. Fyrstu sjúklingarnir verða kallaðir til meðferðar í næstu viku en átakið verður unnið í áföngum. Um 200 sjúklingar verða teknir til meðferðar hverju sinni. Talið er að um 800 til 1000 manns séu smitaðir af lifrarbólgu C á Íslandi. Á næstu tveimur árum er stefnt að því að bjóða öllum sem greindir eru með smit meðferð með lyfinu Harvoni, þeim að kostnaðarlausu. Lyfjafyrirtækið Gilead leggur til lyfin og heilbrigðisyfirvöld greiða kostnað í kringum framkvæmd. SÁÁ er samstarfsaðili í verkefninu. Meginhlutverk SÁÁ verður að setja upp sérstaka aðstöðu á sjúkrahúsinu Vogi til að meðhöndla sjúklinga sem greinast þar. Gert er ráð fyrir að það verði 200 manns á ári hverju. Einnig mun SÁÁ afhenda Landspítalnum persónugreinanlegar upplýsingar um þá sjúklinga sem kunnugt er um í skrám SÁÁ, til að hægt verði að bjóða þeim meðferð. Lifrarbólga C er fyrst og fremst sjúkdómur þeirra sem sprauta sig með vímuefnum í æð. Fyrir meira en tuttugu árum hóf SÁÁ skimum fyrir veirunni sem veldur sjúkdómnum meðal þeirra sem komu til meðferðar á Vogi. Á því tímabili hafa rúmlega 900 tilfelli af lifrarbólgu C greinst á sjúkrahúsinu. Á sama tímabili hafa ár hvert 120-158 sjúklingar sem leggjast inn á Vog greinst með virka lifrarbólgu C. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir hjá SÁÁ, segir meira en helming greinast áður en þeir verða þrítugir. „Þetta er sjúkdómur unga fólksins,“ segir hann og fagnar hann mjög átakinu. „Það er of oft að maður sé að tilkynna mjög ungu fólki og foreldrum þeirra að það sé með sjúkdóminn.“
Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Fleiri fréttir Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Sjá meira