Flóttamenn auka hagvöxt í Tyrklandi Ingvar Haraldsson skrifar 28. maí 2016 07:00 Sýrlenski flóttamaðurinn Mohmad Bozan í verslun sem hann stofnaði í landamærabænum Reyhanli í Tyrklandi. Bozan er einn af fjölmörgum flóttamönnum sem komið hafa á fót atvinnurekstri í landinu. NordicPhotos/getty
Sýrlenskir flóttamenn hafa aukið hagvöxt í Tyrklandi samkvæmt nýrri skýrslu Standard & Poor’s. Sýrlendingar hafa stofnað 4.000 ný fyrirtæki í Tyrklandi frá árinu 2011, þar af 1.600 á síðasta ári og 590 til viðbótar á fyrstu þremur mánuðum ársins, að því er fram kemur í frétt The Financial Times en 2,7 milljónir Sýrlendinga hafa flúið frá Sýrlandi til Tyrklands á síðustu fimm árum. The Financial Times bendir á að þó flestir sýrlenskir flóttamenn í Tyrklandi búi við mjög bág kjör í og við flóttamannabúðir séu margir þeirra úr sýrlenskri millistétt, sem eigi sparnað og hafi aðgang að lánsfé. Einn þeirra er Remo Fouad, fimmtugur bakari, sem flúði Aleppo, fjölmennustu borg Sýrlands, fyrir þremur árum. Hann byrjaði á því að opna sætabrauðs- og sælgætisverslun í Egyptalandi, svo Líbanon, með sparnaði sem hann hafði falið á líbönskum bankareikningum, en báðar verslanirnar fóru á hausinn. „Í Egyptalandi áttu viðskiptavinirnir engan pening,“ segir Fouad. „Í Líbanon, komu þeir mjög illa fram við Sýrlendinga,“ bætir hann við. Fyrir tveimur árum opnaði hann litla verslun í Istanbúl og rekur í dag verksmiðju á fjórum hæðum, tvær verslanir og stefnir á að opna þá þriðju. „Ég borga mína skatta, borga fólki góð laun og fer að lögum,“ segir hann. Mohamed Nizar Bitar rak keramíkverksmiðjur í Sýrland, en flúði land þegar hann var varaður við því að stjórnvöld hygðust handataka hann. Varði hann nærri fjórum milljónum króna af sparifé sínu til að koma sér og fjölskyldu sinni úr landi. Afgangurinn af sparifé hans, ríflega hundrað þúsund krónur, fór í að opna arabískan matsölustað og heimsendingarþjónustu í kjallara í Tyrklandi. Í dag rekur hann veitingahúsakeðju á sjö stöðum með 330 starfsmönnum og hefur um 260 milljónum króna verið varið í að fjárfesta í búnaði og húsnæði á vegum fyrirtækisins. Hagvöxtur í Tyrklandi var 5,7 prósent á síðustu þremur mánuðum síðasta árs en ýmsar áskoranir fylgja þessum miklu þjóðflutningum. Fjögur prósent af íbúum Tyrklands eru Sýrlendingar og margir þeirra kunna lítið í tyrknesku. Þá er atvinnuleysi í landinu ellefu prósent og sumir tyrkneskir verkamenn telja Sýrlendinga vera að stela af þeim störfum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent „Það bjó enginn í húsinu“ Innlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Innlent Fleiri fréttir Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sjá meira