Titilvörn Kiel nánast úr sögunni eftir óvænt tap Kristinn Páll Teitsson skrifar 22. maí 2016 17:09 Alfreð Gíslason þarf líklegast að horfa á eftir titlinum til andstæðinganna. Vísir/Getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel töpuðu óvænt 30-29 gegn MT Melsungen á útivelli í þýsku deildinni í handbolta í dag en fyrir vikið er titilvörn Kiel nánast úr sögunni þegar stutt er eftir af tímabilinu. Eftir sigur Flensburg í gær og Löwen í dag þurfti Kiel á sigri að halda til að eiga von á því að verja titilinn sem Kiel hefur hampað ellefu sinnum á síðustu tólf árum og fjögur ár í röð. Kiel leiddi 17-14 í hálfleik en heimamenn í Melsungen með Momir Rnic fremstan í flokki náðu að snúa leiknum sér í hag í seinni hálfleik og að knýja fram sigur á lokamínútum leiksins. Eftir leikinn er Kiel sex stigum frá toppsætinu þegar fjórir leikir eru eftir en Kiel er áfram með þriggja stiga forskot á Melsungen í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Alexander Petersson, Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í Rhein-Neckar Löwen náðu hinsvegar toppsætinu á ný af Flensburg með naumum 23-19 sigri á Wetzlar á útivelli. Kim Ekdahl fór fyrir liði Löwen í dag með fimm mörk en Alexander bætti við tveimur mörkum á meðan Stefán Rafn komst ekki á blað. Í 2. deildinni siglir Aue lygnan sjó en liðið komst aftur á sigurbrautmeð 24-18 sigri á Rostock í dag eftir tvo tapleiki í röð. Bjarki Már Gunnarsson var öflugur í varnarleik Aue að vanda en bætti við þremur mörkum í sókninni en Árni Þór Sigtrygsson bætti við tveimur mörkum.Úrslit dagsins: Hannover-Burgdorf 28-23 Lemgo Melsungen 30-29 Kiel Magdeburg 34-23 Stuttgart Wetzlar 19-23 Rhein-Neckar Löwen
Handbolti Mest lesið Greindi allt fíaskóið í Grindavík: „Augljóst að hann er ekki að slást við dómarann“ Körfubolti Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Golf Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Handbolti Stóra boxkvöldinu í Gamla bíói slegið á frest Sport Sakaði Luke Littler um dónaskap Sport Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Íslenski boltinn Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Íslenski boltinn Mickelson neyðist til að sleppa Masters Golf Sonur Schwarzenegger vann fyrstu keppnina sína Sport „Bara sorry, ég sé þetta ekki gerast“ Körfubolti Fleiri fréttir Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Orri öflugur en staða Sporting viðkvæm Elín Klara markahæst og undanúrslit blasa við Naumt forskot hjá Janusi og félögum Uppgjörið: Haukar - Afturelding 32-24 | Hafnfirðingarnir sendu Aftureldingu í sumarfrí Óttaðist endalokin fyrir þrettán árum Fram skildi ÍR eftir og mætir Val í undanúrslitum Stjarnan og Grótta spila upp á sæti í efstu deild Haukar áfram í undanúrslit en Akureyringar í sumarfrí Birgir markahæstur í óvæntum sigri Danir að þvælast fyrir viðræðum HSÍ við Snorra og Arnór? „Styttist í fréttir“ Í afar erfiðum málum eftir stórt tap Stjarnan svaraði fyrir sig og knúði fram oddaleik Elín Klara skoraði þrjú mörk og Sävehof er komið yfir Íslendingaliðin undir í einvígum sínum Skór Rúnars upp í hillu Eduard Koksharov fallinn frá Markahæsti leikmaður HK til Fram Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Var eitrað fyrir leikmönnum Sporting? „Þetta var einhver holræsislykt“ Fékk starfið sem Guðmundur var orðaður við „Höfum dílað á jákvæðan hátt við allt sem upp hefur komið“ „Vorum náttúrulega að mæta Íslandsmeisturunum“ Einar með stórleik er Afturelding knúði fram oddaleik Uppgjörið: Fram - FH 27-33 | FH sendi meistarana í sumarfrí Haukur í liði umferðarinnar eftir að hafa komið að 23 mörkum í sama leiknum Ágúst úr Kórnum í Krikann Lið Orra kvartar undan Porto: Eitruð og sterk lykt í klefanum Saka danskt topplið um að tapa viljandi Stuðningsmaður aldarinnar fékk silfurmerki ÍR Sjá meira