Hrægammabónusar Félagar í InDeFence hóppnum skrifar 6. september 2016 07:00 Það er búið að vera skrýtið að fylgjast með umræðunni um ofurbónusana sem starfsmenn slitabúanna eru að fá þessa dagana. Það er eins og fólk viti ekki almennilega af hverju það er svona rosalega reitt. En nú eru margir að kveikja á perunni. Þiggjendur bónusgreiðslnanna eru íslenskir erindrekar vogunarsjóðanna. Sjóða sem keyptu nánast heila landsframleiðslu á slikk í kreppunni – til að græða á efnahagsþrengingum Íslendinga. Þetta eru mennirnir sem tókst að slá ryki í augu stjórnmálamanna, embættismanna og almennings. Þeim tókst að telja öllum trú um það að best væri að gefa vogunarsjóðunum sem mest eftir. Þeir myndu mæta 39% stöðugleikaskatti með lögsóknum. Niðurstaðan var að kröfuhafarnir greiddu miklu lægri stöðugleikaframlög og fengu þar með að losna undan fjármagnshöftum með stórfé. Þannig færðu bónusþegar umbjóðendum sínum hundruð milljarða af fé sem réttilega hefði runnið í ríkissjóð. Nú eru þeir að fá „silfurpeninga“ sína, sem eru aðeins brotabrot af þeim upphæðum sem kröfuhafarnir höfðu úr þrotabúum gömlu föllnu bankanna. Allt er þetta beinlínis á kostnað okkar hinna, sem enn sitjum föst í fjármagnshöftum. Það er síðan grátlegt að fylgjast með ráðherrum klóra sér í hausnum og hneykslast yfir bónusgreiðslum, sem þeir sköpuðu svigrúm fyrir með slökum nauðasamningum við kröfuhafana um þessi aumu stöðugleikaframlög. Ólafur Elíasson MBA Agnar Helgason mannfræðingur Ragnar Ólafsson félagssálfræðingur Davíð Blöndal eðlis- og tölvunarfræðingur Torfi Ólafsson verkfræðingur Sveinn Valfells eðlis- og hagfræðingur Höfundar eru meðlimir í InDefence hópnum.Þessi grein birtist upphaflega í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen Skoðun Halldór 04.04.2026 Halldór Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Álftanes – ný byggð á flóðasvæði Einar Sveinbjörnsson skrifar Skoðun Má lækka skatta? Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Um langa föstudaga, fólk á flótta og konur sem þora Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Horn í síðu fyrirtækjareksturs Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Flokksformaðurinn sem styður þjóðarmorð Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Bændur, páskalamb og sjókvíaeldi Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Sjá meira
Það er búið að vera skrýtið að fylgjast með umræðunni um ofurbónusana sem starfsmenn slitabúanna eru að fá þessa dagana. Það er eins og fólk viti ekki almennilega af hverju það er svona rosalega reitt. En nú eru margir að kveikja á perunni. Þiggjendur bónusgreiðslnanna eru íslenskir erindrekar vogunarsjóðanna. Sjóða sem keyptu nánast heila landsframleiðslu á slikk í kreppunni – til að græða á efnahagsþrengingum Íslendinga. Þetta eru mennirnir sem tókst að slá ryki í augu stjórnmálamanna, embættismanna og almennings. Þeim tókst að telja öllum trú um það að best væri að gefa vogunarsjóðunum sem mest eftir. Þeir myndu mæta 39% stöðugleikaskatti með lögsóknum. Niðurstaðan var að kröfuhafarnir greiddu miklu lægri stöðugleikaframlög og fengu þar með að losna undan fjármagnshöftum með stórfé. Þannig færðu bónusþegar umbjóðendum sínum hundruð milljarða af fé sem réttilega hefði runnið í ríkissjóð. Nú eru þeir að fá „silfurpeninga“ sína, sem eru aðeins brotabrot af þeim upphæðum sem kröfuhafarnir höfðu úr þrotabúum gömlu föllnu bankanna. Allt er þetta beinlínis á kostnað okkar hinna, sem enn sitjum föst í fjármagnshöftum. Það er síðan grátlegt að fylgjast með ráðherrum klóra sér í hausnum og hneykslast yfir bónusgreiðslum, sem þeir sköpuðu svigrúm fyrir með slökum nauðasamningum við kröfuhafana um þessi aumu stöðugleikaframlög. Ólafur Elíasson MBA Agnar Helgason mannfræðingur Ragnar Ólafsson félagssálfræðingur Davíð Blöndal eðlis- og tölvunarfræðingur Torfi Ólafsson verkfræðingur Sveinn Valfells eðlis- og hagfræðingur Höfundar eru meðlimir í InDefence hópnum.Þessi grein birtist upphaflega í Fréttablaðinu.
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar