Innlent

Annasamur morgun hjá lögreglunni

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/HARI
Morguninn var annasamur fyrir Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu vegna ölvunar. Ökumenn voru stöðvaðir um alla Reykjavíkurborg vegna gruns um ölvun og akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá bárust tilkynningar um innbrot í hús og bíla og var fimmtán ára piltur stöðvaður í akstri eftir að hann hafði tekið bíl ófrjálsri hendi af heimili sínu. 

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni var áðurnefndur piltur með fjóra farþega í bílnum og þar af voru þrír undir átján ára aldri. Samband var haft við foreldra viðkomandi og má ökumaðurinn búast við sekt.

Skömmu eftir klukkan sjö í morgun barst lögreglunni tilkynning um yfirstandandi innbrot í bíl í bílageymslu í Kópavogi. Þegar lögregluþjóna bar að garði voru íbúar hússins búnir að hefta för þjófsins. Hann var í annarlegu ástandi og var handtekinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×