Englendingar nokkrum sekúndum frá sigri á Spánverjum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. nóvember 2016 22:05 Vardy tók gínufagn eftir að hann skoraði annað mark Englands. vísir/getty
England var aðeins hársbreidd frá því að vinna Spán í vináttulandsleik á Wembley í kvöld. Lokatölur 2-2. Englendingar voru 2-0 yfir þegar ein mínúta var til leiksloka. Iago Aspas, fyrrum leikmaður Liverpool, minnkaði þá muninn í 2-1 og þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Isco metin með skoti úr þröngu færi sem Tom Heaton, markvörður Englands, hefði líklega átt að verja. Þetta var fjórði leikur Englands undir stjórn Gareths Southgate og hann byrjaði frábærlega fyrir enska liðið. Á 9. mínútu felldi Pepe Reina, markvörður Spánverjar, Jamie Vardy innan teigs og vítaspyrna dæmd. Adam Lallana fór á punktinn og skoraði af öryggi, sitt þriðja mark í síðustu þremur landsleikjum. Staðan var 1-0 í hálfleik en eftir aðeins þriggja mínútna leik í seinni hálfleik skoraði Vardy annað mark Englendinga með flugskalla eftir fyrirgjöf Jordans Henderson, sem bar fyrirliðabandið í fjarveru Waynes Rooney. England hafði ágætis tök á leiknum framan af seinni hálfleik en undir lokin gáfu gestirnir í og náðu að koma til baka eins og áður sagði. England er samt enn ósigrað undir stjórn Southgates.England 1-0 Spánn England 2-0 Spánn England 2-1 Spánn
Enski boltinn HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira