Sakfelldur fyrir að flengja barn Nadine Guðrún Yaghi skrifar 25. júní 2016 07:00 Drengurinn marðist á rassinum. Vísir/HAR
Tuttugu og átta ára gamall karlmaður var sakfelldur í Héraðsdómi Norðurlands eystra þann 10. júní síðastliðinn fyrir brot gegn barnaverndarlögum og líkamsárás með því að hafa flengt stjúpson sinn. Það gerði hann í því skyni að aga hann vegna óþekktar og voru afleiðingarnar þær að drengurinn marðist á rassinum. Atvikið átti sér stað í mars síðastliðnum. Maðurinn hlaut fjögurra mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm. Í dóminum segir að ákærði hafi skýlaust viðurkennt sakargiftir hjá lögreglu og fyrir dómi og hafi ekki neinn sakaferil. Þá segir að það sé metið manninum til refsiþyngingar að verknaðurinn hafi beinst gegn ungu barni á heimili sínu. Fyrir dómi greindi maðurinn frá því að verknaðinn hefði hann framið vegna fávísi og að um hefði verið að ræða uppeldisaðferð sem notuð hefði verið sem neyðarúrræði í hans eigin uppeldi. Fordæmi eru til fyrir því að einstaklingar séu sakfelldir fyrir að flengja börn sín en til að mynda var faðir fjögurra ára drengs sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness árið 2015 fyrir að flengja hann. Hann var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. júní
Mest lesið Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Sjá meira