Síldarsýking greinist í ungsíld Svavar Hávarðsson skrifar 20. júní 2016 07:00 Síldin hefur orðið fyrir áföllum – sýkingu auk síldardauðans í Kolgrafarfirði þar sem 55.000 tonn drápust. vísir/Vilhelm
Rannsóknir og mælingar Hafrannsóknastofnunar í fyrrahaust á ungsíld fyrir norðan land, sýna nýsmit í sömu alvarlegu sýkingu og greindist fyrst í sumargotssíldarstofninum árið 2008. Merki um nýsmit í stofninum hafa annars ekki verið teljanleg síðustu fimm ár. Þetta kemur fram í skýrslu Hafrannsóknastofnunar um ástand nytjastofna á Íslandsmiðum 2015/2016 og aflahorfur fiskveiðiárið 2016/2017. Þar segir frá bergmálsmælingum á svæðinu frá Breiðafirði norður og austur um í Axarfjörð í september og október í fyrra. Kemur fram að sýkingarhlutfall af völdum frumdýrsins Ichthyophonus hoferi í 2003-2006 árgöngum síldarinnar er enn hátt, eða um 30 til 40 prósent. „Sýkingarhlutfall í 2007 til 2009 árgöngunum hefur hins vegar verið að hækka síðustu tvö ár. Eins greindist sýking í tveggja ára síld norðanlands í vetur. Ljóst er að nýsmit á sér stað þótt það sé minna en árin 2009 til 2010. Mikilvægt er að fylgst verði vel með þróun sýkingarinnar.“Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri á nytjastofnasviði HafrannsóknastofnunarÞorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri á nytjastofnasviði Hafrannsóknastofnunar, segir að ekki sé vitað á þessu stigi málsins hversu alvarleg, eða útbreidd sýkingin er í yngstu síldinni. Nýsmitið sé hjá yngstu síldinni og óvissan því meiri en annars væri í mati á nýliðun stofnsins sökum þess að ekki er vitað hvort þetta veldur dauða í yngstu árgöngum síldarinnar. „Þessi sýking hefur verið furðuleg því kennslubækurnar sögðu að þetta ætti allt að drepast. En við sjáum ennþá mikið af sýktri síld í veiðistofninum, þó það hafi auðvitað mikið drepist af völdum sýkingarinnar fyrstu tvö árin eftir að hún kom upp,“ segir Þorsteinn og því eru góðu fréttirnar þær að sýkingin virðist hafi valdið minni dauða í stofninum en í fyrstu var óttast og dæmi sýndu annars staðar frá. Ennþá er ótímabært að gefa út upplýsingar um hversu víðtækt smitið er, frekari rannsókna sé þörf, að sögn Þorsteins. Hafrannsóknastofnun gerir ráð fyrir að hrygningarstofninn muni ná lágmarki á næsta ári en stofnþróun næstu ára sé hulin óvissu þar sem ekki hefur fengist gott mat á yngri árgangana og vegna þessara vísbendinga um sýkingu í yngstu árgöngunum. Góð nýliðun á árunum 1999-2002 leiddi til að hrygningarstofninn náði hámarki á árunum 2005-2008. Hann minnkaði hins vegar hratt til ársins 2011 vegna affalla af völdum sýkingarinnar í stofninum, sem sýnir alvöru málsins. Stofninn, eða fullorðin síld, er talin vera um 400.000 tonn. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 20. júní.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Efasemdir um læsisátak Ég er verulega gagnrýnin á læsisátak menntamálaráðherra; þjóðarátak um læsi sem mun kosta 132 milljónir kr 20. júní 2016 07:00 Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira
Efasemdir um læsisátak Ég er verulega gagnrýnin á læsisátak menntamálaráðherra; þjóðarátak um læsi sem mun kosta 132 milljónir kr 20. júní 2016 07:00