Innlent

Mikill verðmunur á páskaeggjum

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Allt að 57 prósent verðmunur er á páskaeggjum í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Allt að 57 prósent verðmunur er á páskaeggjum í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. vísir/stefán
Allt að 57 prósent verðmunur er á páskaeggjum í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Algengast er að 20 til 40 prósenta munur sé á hæsta og lægsta verði páskaeggja, að því er fram kemur í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í matvöruverslunum í gær.

Flest páskaeggin í könnuninni voru fáanleg hjá Fjarðarkaupum og Hagkaupum en fæst hjá Samkaupum-Úrval og Nettó.

Ódýrast hjá Bónus - Dýrast hjá Hagkaupum og Samkaupum

Bónus var oftast með lægsta verðið eða á 20 af þeim 34 eggjum sem skoðuð voru. Hæsta verðið var oftast hjá Hagkaupum og Samkaupum-Úrval eða á 14 páskaeggjum af 34 og hjá Iceland á 10 eggjum. Þá voru þau egg, sem bæði voru til í Bónus og Krónunni, í flestum tilvikum einnar krónu ódýrari í Bónus.

Þá var um 27 prósenta verðmunur á 450 gramma páskaeggi frá Góu sem ódýrast var í Krónunni, á 1.495 krónur, en dýrast á 1.898 krónur hjá Samkaupum-Úrval, sem er 403 krónu verðmunur. 30 prósent verðmunur var á 530 gramma draumaeggi frá Freyju sem var ódýrast á 2.198 krónur hjá Bónus en dýrast á 2.849 krónur hjá Hagkaupum, sem er 651 kr verðmunur. Nóa kropps páskaegg var ódýrast á 2.399 krónur hjá Krónunni en dýrast á 3.199 krónur hjá Iceland sem er 33 prósent verðmunur.

Minnstur verðmunur í könnuninni var á Freyju desert eggjum, sex stykkjum, sem voru ódýrust á 648 krónur hjá Fjarðarkaupum en dýrust á 689 krónur hjá Hagkaupum, sem er 6 prósent verðmunur. Mestur verðmunur var 57 prósent á Nóa Síríus páskaeggi númer 3 sem var ódýrast á 759 krónur hjá Bónus en dýrast á 1.189 krónur hjá Hagkaupum, sem er 430 króna verðmunur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×