Til í slaginn Oddný Harðardóttir skrifar 2. júní 2016 07:00 Samfylkingin, jafnaðarmannaflokkur Íslands, hefur ákveðið að blása til landsfundar 3.-4. júní, endurnýja forystusveit flokksins og skerpa á stefnumálunum. Samfylkingin mun mæta fersk til leiks að loknum landsfundi. Og það er tilhlökkunarefni fyrir alla þá sem þrá að finna baráttunni fyrir jafnrétti og réttlæti greiðan farveg. Ég vil leiða þá baráttu og vil að velferðarmálin verði þar sett í öndvegi. Augljóst kosningamál jafnaðarmanna verður gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta enda eru gjöldin sem sjúklingar greiða allt of há og of margir draga það þess vegna að leita sér lækninga. Bygging nýs Landspítala, áætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila, framkvæmd geðheilsustefnu og betri heilsugæsla sem er samstillt félagsþjónustu sveitarfélaga, eru allt aðkallandi velferðarmál. Jafnrétti til náms verður einnig kosningamál samofið raunhæfri byggða-, mennta- og atvinnustefnu. Húsnæðisgreiðslur, barnagreiðslur og lengra fæðingarorlof mætir þörfum ungra barnafjölskyldna. Einfaldari og betri almannatryggingar eru nauðsynlegar.Spilling Til að fjármagna velferðina þarf fullt verð fyrir afnot af auðlindum þjóðarinnar að renna í ríkissjóð og allir þurfa að leggja sitt af mörkum. Með Panama-skjölunum komst upp um Íslendinga sem höfðu nýtt sér skattaskjól og sumir þeirra hafa væntanlega talið sér vera þar óhætt, í skjóli fyrir skattinum á Íslandi. Við eigum að nýta það tækifæri sem Panama-skjölin gefa okkur til að uppræta kerfi blekkingar og spillingar sem búið hefur verið til fyrir þá sem vilja komast hjá því að greiða sinn hlut til samfélagsins. Einhverjir eigendur aflandsfélaga fengu háar fjárhæðir afskrifaðar í kjölfar falls bankanna haustið 2008. Dæmi eru um að kröfur í þrotabú bankanna hafi verið vistaðar í aflandsfélögum. Háar fjárhæðir hafa komið til landsins í gegnum gjaldeyrisútboð Seðlabankans og eigendur þess fjár fengið þar verulegan ábata. Upplýsa þarf hvort hér sé í einhverjum tilfellum um sömu aðila að ræða, því slíka spillingu og siðleysi má alls ekki líða.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 2. júní Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir Skoðun Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Hver á sér fegurra föðurland? Marta Eiríksdóttir Skoðun Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Hver á sér fegurra föðurland? Marta Eiríksdóttir skrifar Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Kannski“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir,Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stóru verkefnin leysum við saman Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Varúð má ekki verða að forræðishyggju Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher skrifar Skoðun Upplýst umræða og framsal ríkisvalds Margrét Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólinn er alltaf vandinn Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Geisp Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Sjá meira
Samfylkingin, jafnaðarmannaflokkur Íslands, hefur ákveðið að blása til landsfundar 3.-4. júní, endurnýja forystusveit flokksins og skerpa á stefnumálunum. Samfylkingin mun mæta fersk til leiks að loknum landsfundi. Og það er tilhlökkunarefni fyrir alla þá sem þrá að finna baráttunni fyrir jafnrétti og réttlæti greiðan farveg. Ég vil leiða þá baráttu og vil að velferðarmálin verði þar sett í öndvegi. Augljóst kosningamál jafnaðarmanna verður gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta enda eru gjöldin sem sjúklingar greiða allt of há og of margir draga það þess vegna að leita sér lækninga. Bygging nýs Landspítala, áætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila, framkvæmd geðheilsustefnu og betri heilsugæsla sem er samstillt félagsþjónustu sveitarfélaga, eru allt aðkallandi velferðarmál. Jafnrétti til náms verður einnig kosningamál samofið raunhæfri byggða-, mennta- og atvinnustefnu. Húsnæðisgreiðslur, barnagreiðslur og lengra fæðingarorlof mætir þörfum ungra barnafjölskyldna. Einfaldari og betri almannatryggingar eru nauðsynlegar.Spilling Til að fjármagna velferðina þarf fullt verð fyrir afnot af auðlindum þjóðarinnar að renna í ríkissjóð og allir þurfa að leggja sitt af mörkum. Með Panama-skjölunum komst upp um Íslendinga sem höfðu nýtt sér skattaskjól og sumir þeirra hafa væntanlega talið sér vera þar óhætt, í skjóli fyrir skattinum á Íslandi. Við eigum að nýta það tækifæri sem Panama-skjölin gefa okkur til að uppræta kerfi blekkingar og spillingar sem búið hefur verið til fyrir þá sem vilja komast hjá því að greiða sinn hlut til samfélagsins. Einhverjir eigendur aflandsfélaga fengu háar fjárhæðir afskrifaðar í kjölfar falls bankanna haustið 2008. Dæmi eru um að kröfur í þrotabú bankanna hafi verið vistaðar í aflandsfélögum. Háar fjárhæðir hafa komið til landsins í gegnum gjaldeyrisútboð Seðlabankans og eigendur þess fjár fengið þar verulegan ábata. Upplýsa þarf hvort hér sé í einhverjum tilfellum um sömu aðila að ræða, því slíka spillingu og siðleysi má alls ekki líða.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 2. júní
Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar