Ók ölvaður með fimm ára dóttur sína í bílnum Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 17. desember 2016 08:33 Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. vísir/ktd
Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Almenningur gat fylgst með störfum lögreglunnar í tístmaraþoni lögreglunnar í nótt. Lögreglan sagði frá öllum tilkynningum sem henni bárust á Twitter. Töluvert var um ölvunarakstur og slagsmál. Rétt fyrir ellefu í gærkvöldi fékk lögreglan tilkynningu um aðfinnsluvert aksturslag. Skömmu síðar var bifreiðin stöðvuð og reyndist ökumaðurinn vera ölvaður og fimm ára dóttir ökumannsins var í bílnum. Að lokinni blóðtöku var maðurinn laus en fulltrúi barnaverndar kom á vettvang til að tryggja hag barnsins. Þá var tilkynnt um slagsmál inni á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur klukkan 17 mínútur yfir 3 í nótt. Í tilkynningu var talað um að eggvopni væri beitt og þegar dyraverðir reyndu að skerast í leikinn skarst einn dyravörður á hendi. Skömmu síðar komst gerandinn undan en var handtekinn klukkan 26 mínútur yfir 3 af Sérsveit Ríkislögreglustjóra. Maðurinn var vistaður í fangageymslu vegna frekari rannsóknar málsins. Um klukkan eitt var tilkynnt um leigubílstjóra í vandræðum í miðbænum en farþegi hafði veist að honum og slegið hann í höfuðið. Bílstjórinn var búinn að aka viðkomandi í Kópavog en þá neitaði farþeginn að greiða fyrir ferðina og fór bílstjórinn því aftur með viðkomandi í miðbæinn. Maðurinn var handtekinn og hann vistaður í fangageymslu. Þá var skemmtistað á Höfðanum lokað vegna brots á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Á staðnum var haldið bjórkvöld og inni á staðnum reyndist fjöldi fólks undir aldri sem hafði fengið afgreitt áfengi. Staðurinn var rýmdur og honum lokað í kjölfarið. Lögreglunni bárust þrjár tilkynningar um heimilisofbeldi og líkamsárás, tvær í Hafnarfirði og eina í Árbæ. Í tveimur tilfellum voru gerendur handteknir og vistaðir í fangageymslu við rannsókn málsins en í einu þeirra var gerandi farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að garði og fannst ekki.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira