Maðurinn sem varð Brandon Lee að bana fyrir slysni látinn Birgir Olgeirsson skrifar 26. október 2016 22:24 Michael Massee. Vísir/Getty
Leikarinn Michael Massee er látinn 61 árs að aldri. Massee þessi var frá Bandaríkjunum en hann var því miður ekki þekktastur fyrir leikferil sinn, heldur fyrir að hafa verið maðurinn sem varð leikaranum Brandon Lee að bana fyrir slysni við tökur á kvikmyndinni The Crow. Dánarorsökin liggja ekki fyrir að svo stöddu.Brandon Lee var sonur Bruce Lee.Vísir/GettyMassee fór með hlutverk Funboy í þeirri mynd en leikmunadeild myndarinnar hafði fært honum byssu með púðurskotum sem hann átti að skjóta á Brandon Lee. Handvömm varð þess valdandi að púðurskotin reyndust skaðleg og hæfðu Brandon Lee. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést í aðgerð 31. mars árið 1993, 28 ára gamall. Massee, sem horfði að eigin sögn aldrei á The Crow, dró sig í hlé frá leiklistinni eftir þetta atvik. „Ég held að maður jafni sig aldrei á svona atviki,“ sagði hann í viðtali árið 2005. Leikarinn á að baki áttatíu sjónvarps- og kvikmyndaverkefni, þar á meðal í myndum leikstjórans David Fincher, Seven og The Game, og í Lost Highway eftir David Lynch. Hann lék einnig í Catwoman, The Amazing Spider-Man og The Amazing Spider-Man 2. Í sjónvarpi fór hann til að mynda með hlutverk illmennisins Ira Gaines í fyrstu seríunni af 24 og óþokkans Charles Hoyt í Rizzoli & Izsles. Þá lék hann einnig gestahlutverk í The X-Files, Alias, Supernatural, House og The Blacklist.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira