Allir strokufangarnir í Kaliforníu nú í haldi lögreglu Atli Ísleifsson skrifar 30. janúar 2016 20:44 Jonathan Tieu (20 ára), Bac Duong (43 ára) og Hossein Nayeri (37 ára). MYND/LÖGREGLA Í KALIFORNÍU
Tveir af strokuföngunum þremur, sem sluppu úr fangelsi í Kaliforníu í síðustu viku, voru handteknir af lögreglu í San Francisco í dag eftir að kona benti lögreglumanni á hvítan flóttabíl mannanna. Hinn tvítugi Jonathan Tieu og hinn 37 ára Hossein Nayeri voru teknir höndum degi eftir að hinn 43 ára Bac Duong hafði gefið sig fram við lögreglu í Santa Ana.Í frétt USA Today kemur fram að lögreglustjórinn í Orange-sýslu, Sandra Hutchens, segi að lögreglumaður sem var að sinna öðru verkefni hafi við stöðvaður af konu sem benti á flóttabíl strokufanganna, en honum hafði verið ítarlega lýst í fjölmiðlum. Duong hafði stolið sendiferðabíl sama dag og þeir sluppu úr fangelsinu. Nayeri lagði á flótta þegar lögreglumenn nálguðust bílinn og var handtekinn skömmu síðar. Tieu fannst í felum inni í bílnum. Þrímenningarnir höfðu verið í haldi ásamt 65 öðrum í Santa Ana, um fimmtíu kílómetrum suðaustur af Los Angeles. Föngunum, sem allir hafa verið dæmdir fyrir alvarleg ofbeldisbrot, tókst með ótrúlegum hætti að sleppa úr fangelsinu með því að brjóta sér leið inn í rými fyrir pípulagnir, saga sundur járnrimla og lagnir, komast upp á þak og síga þaðan niður með því að binda saman lök. Nayeri var meðal annars sakfelldur fyrir frelsissviptingu og pyndingar. Árið 2012 á hann, ásamt hópi manna, að hafa rænt eiganda sölustaðar marijúana í Kaliforníu og reynt að kúga út úr honum fé. Á Nayeri að hafa slegið manninn með skammbyssu og pyndað hann með gasbrennara. Að lokum eiga þeir að hafa skorið getnaðarliminn af manninum. Tieu hafði verið í fangelsi síðan í október 2013 eftir að hafa við dæmdur sekur um morð og tilraunir til morðs.Cut steel screen in Mod F Tank where inmates were housed 2/5 #ocjailescape pic.twitter.com/Rf8mTEErp0— OC Sheriff, CA (@OCSD) January 24, 2016 Cut steel screen where inmates made access to plumbing tunnel from tank 3/5 #ocjailescape pic.twitter.com/xXb8ukD4Y7— OC Sheriff, CA (@OCSD) January 24, 2016 Roof area of CMJ where razor wire was compromised and is believed inmates repelled down to ground 4/5 #ocjailescape pic.twitter.com/IFf9p0CpMF— OC Sheriff, CA (@OCSD) January 24, 2016 Makeshift rope made with linens, utilized in escape 5/5 #ocjailescape pic.twitter.com/rWDIkONtxA— OC Sheriff, CA (@OCSD) January 24, 2016
Tengdar fréttir Einn strokufanganna gaf sig fram til lögreglu Bac Tien Duong strauk úr fangelsi ásamt tveimur öðrum fyrir viku síðan. 29. janúar 2016 21:45 Flóttafangarnir í Kaliforníu: "Hannibal Lecter gengur laus“ Lögregla leitar enn þeirra Hossein Nayeri, Jonathan Tieu og Bac Duong sem sluppu úr fangelsi á föstudag. 27. janúar 2016 10:25 Mest lesið Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent Fleiri fréttir Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Sjá meira
Einn strokufanganna gaf sig fram til lögreglu Bac Tien Duong strauk úr fangelsi ásamt tveimur öðrum fyrir viku síðan. 29. janúar 2016 21:45
Flóttafangarnir í Kaliforníu: "Hannibal Lecter gengur laus“ Lögregla leitar enn þeirra Hossein Nayeri, Jonathan Tieu og Bac Duong sem sluppu úr fangelsi á föstudag. 27. janúar 2016 10:25