Erlent

Opna nýjar búðir fyrir flóttamenn

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Ástandið í Dunkirque eftir miklar rigningar.
Ástandið í Dunkirque eftir miklar rigningar. Nordicphotos/AFP
Frakkar hyggjast opna nýjar flóttamannabúðir í Norður-Frakklandi til að bregðast við hrakandi ástandi þeirra sem nú þegar eru til staðar á svæðinu. Mikið hefur rignt undanfarið við Ermarsund og er ástandið í flóttamannabúðunum í Dunkerque, sem hýsa þúsundir flóttamanna, sagt ómannúðlegt.

Fyrirhugað er að reisa nýjar búðir í Grande-Synthe í nágrenni Dun­kerque. Þær eiga að vera búnar sturtum, hreinlætisvörum í meiri mæli en í Dunkerque sem og betri aðbúnaði ef frysta skyldi. Búðunum er ætlað að hýsa um 2.500 flóttamenn. Einnig ætla Frakkar að opna aðrar 1.500 manna búðir í Calais.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×