Ósannað hvort tannþráður geri gagn Una Sighvatsdóttir skrifar 5. ágúst 2016 21:00
Allir hafa heyrt þá möntru að það sé ekki nóg að bursta tennurnar tvisvar í dag, heldur verði líka að nota tannþráð. Nú er hisnvegar komið í ljós að orsakasamhengið milli góðrar tannheilsu og þess að nota tannþráð er alls ekki óumdeilt Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum gefa á fimm ára fresti út lýðheilsuvísa, sem lögum samkvæmt verða að byggja á vísindalegum grunni, og hefur notkun tannþráðar verið tilgreind þar allt frá árinu 1979. Í nýjustu útgáfunni í ár er hinsvegar hvergi minnst á tannþráð og þegar AP fréttastofan grennslaðist fyrir um málið var skýringin sú að komið hefði í ljós að rannsóknum um gagnsemi tannþráðs væri stórlega ábótavant. AP fréttastofan skoðaði í kjölfarið stærstu 25 rannsóknirnar sem gerðar hafa verið undanfarinn áratug en þar var yfirleitt borin saman annars vegar notkun á tannbursta eingöngu og hinsvegar samspil tannbursta og tannþráðs. Niðurstöðurnar voru þær að vísbendingar um gagnsemi tannþráðs byggðu á veikum grunni og í sumum tilfellum sé jafnvel hætta á hlutdrægni. Framleiðsla og sala á tannþræði veltir um 2 milljörðum dala á ári á heimsvísu, þar af um milljarði í Bandaríkjunum og hefur iðnaðurinn sjálfur greitt fyrir flestar rannsóknirnar þar í landi.Sjá frétt Associated Press Vilhelm Grétar Ólafsson lektor við tannlæknadeild segir óhætt að fullyrða um gagnsemi tannþráðar.RIGHTViðmiðunarhópar fengu skemmdir Á Íslandi hefur um árabil verið mælt með notkun tannþráðar, en hér er meðal annars byggt á skandinavískum rannsóknum að sögn Vilhelms Grétars Ólafssonar, lektors í tannfyllingu og tannsjúkdómafræðum við Tannlæknadeild Háskóla Íslands „Við höfum verulega góðar langtímarannsóknir frá Svíþjóð á 8. áratugnum. Þær voru unnar bæði á börnum og fullorðnum sem fengu reglubundna og góða hreinsun, meðal annars með tannþræði, í 4-6 ár og engin ný vandamál mynduðust. Hinsvegar voru viðmiðunarhópar sem fengu ekki þessa reglubundnu hreinsun og fengu allt að þrjár nýjar skemmdir á ári."Vísindasiðanefnd myndi ekki samþykkja samanburðarrannsókn Vilhelm játar þó að tannþráður hafi ekki verið einangraður einn og sér sem breyta og að slík rannsókn verði líklega aldrei gerð úr þessu. „Í dag væri erfitt að vinna svona rannsóknir af einhverju viti þar sem engin vísindasiðanefnd myndi samþykkja þær. Til dæmis þar sem maður bannar reglubundna venjulega hreinsun í ákveðnum hópum og notar bara tannþráð í hinum." En þótt strangt til tekið geti reynst ómögulegt að sanna það eftir vísindalega viðmiðum telja tannlæknar notkun tannþráðar í raun heilbrigða skynsemi. „Vegna þess að á hverri tönn eru fimm hliðar og burstinn hreinsar bara þrjár. Á allar tennur safnast bakteríuskán sem veldur bæði skemmdum og tannholdsbólgu. Mest safnast af henni þar sem hún fær að vera í friði, sem meðal annars er á milli tannnanna og líka niðri við tannhold. Ef öll tönnin er ekki vel hreinsuð, eins og þessar sænsku rannsóknir hafa sýnt, þá er fólk ósköp einfaldlega útsett fyrir vandamálum þar sem hreinsun er ábótavant.“Tannlæknar hvika hvergi Vilhelm ítrekar líka að Bandarísku tannlæknasamtökin hafi ekki breytt sinni afstöðu til tannþráðar. Og það hefur Tannlæknafélag Íslands heldur ekki gert, samkvæmt Ástu Óskarsdóttur sem segist hér eftir sem hingað til munu ráðleggja fólki sem vill hugsa vel um tennurnar að innbyrða sem minnst af sykri, þrífa tennurnar tvisvar á dag, bursta alla fleti og nota tannþráð þannig að vel sé þrifið á milli jaxlanna líka. „Tannlæknar á Íslandi eru alls ekki að fara að breyta neinum ráðleggingum sínum á daglegum grunni til sinna sjúklinga.“
Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Hringveginum lokað frá Markarfljóti til Öræfa Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Sjá meira