Svona lokasekúndur sérðu ekki á hverjum degi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 19. apríl 2016 10:00 Þjálfari Nordsjælland reif bolinn sinn og grét í leikslok.
Dramatíkin var hreint ótrúleg í leik Nordsjælland og Tönder um laust sæti í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Tönder vann fyrri leik liðanna, 29-25, og Nordsjælland þurfti því að vinna upp fjögurra marka forskot til að halda sæti sínu í deildinni. Ef ekki kæmist Tönder upp í efstu deild. Nordsjælland var fjórum mörkum yfir og í góðri stöðu þegar hálf mínúta lifði leiks. Liðið leiddi 20-16 og skömmu síðar varði markvörður Nordsjælland frábærlega frá liðsmönnum Tönder. Nordsjælland náði frákastinu.Það sem gerðist í kjölfarið er ótrúlegt og geta áhugasamir séð myndband af lokasekúndunum með því að smella hér.Liðsmenn Nordsjælland reyndu að halda boltanum út leiktímann en fengu dæmda á sig leiktöf þegar markvörður Nordsjælland fékk boltann sendan til baka. Markvörðurinn, Kristian Pedersen, gerði síðan þau mistök að kasta boltanum út í bláinn þegar enn voru nokkrar sekúndur eftir. Fyrir það fékk Tönder rautt spjald og vítakast sem liðið nýtti. Lokatölurnar urðu 20-17 fyrir Tönder sem er komið í efstu deild en Nordsjælland er fallið. Markvörður Tönder lýsti mistökum sínum sem stærstu mistökum áratugarins en aðeins örfáum sekúndum áður var hann í stöðu hetjunnar. Það er líka erfitt annað en að finna til með þjálfara Nordsjælland sem reif af sér bolinn í öllu tilfinningadramanu og grét síðan, skiljanlega enda grátlegt hvernig hans menn köstuðu góðri stöðu frá sér.
Handbolti Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Fleiri fréttir „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Sjá meira