Draumaforsetinn Karl V. Matthíasson skrifar 21. janúar 2016 07:00 Nýr forseti Íslands verður kosinn á þessu ári. Ekki er nú ljóst hversu mörg verða í framboði. Þau verða að öllum líkindum ófá og enn fleiri eru þau sem máta sig í huganum við embættið og langar jafnvel að gefa kost á sér, en leggja ekki í það af ýmsum ástæðum. Forseti Íslands á að vera manneskja sem við eigum öll að geta horft til með virðingu og ánægju. Manneskja sem áttar sig á þeim þáttum í samfélagi okkar sem betur mega fara. Forsetinn á að vera hugrakkur, geta komið með vinsamlegar ábendingar um lagfæringar og breytingar á ýmsum þáttum í þjóðlífi okkar sem stjórnmálafólkið ætti að taka fegins hendi og vilja stuðla að. (Samanber jákvæð viðbrögð forsætisráðherra er núverandi forseti benti vinsamlega á bága stöðu margra eldri borgara og öryrkja í landinu.) Það gæti líka verið vinsamleg ábending að öll þau sem búa í þessu landi ættu að eiga rétt á því að fá að ljúka að minnsta kosti fjögurra ára námi endurgjaldslaust eftir grunnskóla jafnvel þótt þau séu orðin fullorðin. Önnur vinsamleg ábending forseta til þjóðarinnar og valdhafa hennar er að gera mætti mun betur fyrir það fólk sem orðið hefur fyrir hvers konar andlegum og líkamlegum áföllum, en nýtur nú allt of lítils stuðnings til að geta risið almennilega á fætur. Næsti forseti ætti að leggja mikið á sig til þess að skapa aukna virðingu á sviði samskipta kynjanna. Koma sterkt inn í þá umræðu, að engin einasta manneskja sé vara til kynferðislegrar neyslu. Þá er það líka hlutverk forsetans að tala gegn annarri græðgi og benda á það að sýki í peninga er vond og hættuleg sýki sem leitt getur til mikillar þjáningar, orsakað fátækt, skort og hörmungar hjá öðrum. Þetta er jafn mikið alvörumál sem áfengis- og önnur fíkniefnasýki. Á einum stað stendur nefnilega: „Enginn getur þjónað Guði og Mammon.“ Eins mætti segja: „Enginn getur þjónað Guði og Bakkusi.“ Þess vegna á forsetinn að hvetja þjóðina til að vera bindindissama, hógværa og vera ekki í „Við erum best og flottust“ leiðöngrum því afrekin eiga að vera afleiðing ánægjulegrar, uppbyggjandi ástundunar og æfinga en ekki öfugt.Á að vera verndari Forsetinn á að vera verndari þeirra sem miðla lífsgleði, hvatningu, von eða huggun inn í góðar eða erfiðar aðstæður. Forsetinn á að vera verndari flóttamanna og birtingarmynd samfélags sem vill rétta hjálparhönd og stuðla að friðvænlegri heimi. Forsetinn má alls ekki vera merkikerti eða snobbaður og á að hafa húmor fyrir sjálfum sér og þjóð sinni og geta bent henni á þá staðreynd að við lifum ekki lengi hér á jörð og að við eigum að skila landinu, miðunum og samfélaginu öllu í betra ástandi en það var í þegar við fæddumst. Forseti lítils lands á að geta farið í heimsóknir til forseta annarra landa og stuðlað að friði. Forsetinn sem nú fer frá Bessastöðum hefur sýnt að það er hægt að ná sambandi við fullt af valdamiklu fólki og hafa góð áhrif á sviði mannverndar, dýraverndar, annarrar náttúruverndar og friðar í heiminum. En umfram allt verður forseti Íslands að elska alla íbúa landsins jafnt menn og dýr og vera reiðubúinn að taka á móti og styðja hvern þann sem mögulegt er. Forsetinn verður að hafa fallegan og góðan mannskilning, vera umburðarlyndur og styðja með kærleika og elsku til dáða og góðra verka og honum eða henni má ekki vera í nöp við þann kærleiksboðskap sem þjóðin hefur fengið að heyra um aldir og hefur hjálpað og stutt í hvers kyns raunum neyð og sorg en uppörvað til þakklætis og gleði á góðum dögum. Fyrsta verk nýs forseta ætti að vera að bjóða þeim Breiðavíkurdrengjum sem enn lifa og öðrum sem orðið hafa fyrir harðræði, heimsku og illsku af hálfu hins opinbera til iðrunar- og fyrirgefningarveislu á Bessastöðum. Ég bið Guð um að þjóðin eignist kærleiksríka, miskunnsama, hógværa og hjartahreina manneskju á Bessastaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar