Maður sem er sakaður um að brjóta gegn stúlku þarf að víkja úr dómsal þegar hún gefur skýrslu Birgir Olgeirsson skrifar 21. janúar 2016 16:48 Hæstiréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Vesturlands um að maðurinn verði að víkja úr dómsal með stúlkan gefur skýrslu. Vísir/GVA
Hæstiréttur Íslands hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Vesturlands þess efnis að maður sem sakaður er um að hafa nauðgað stúlku þegar hún var sextán ára skuli víkja úr dómsal á meðan hún hefur skýrslu við aðalmeðferð. Í úrskurði Héraðsdóms Vesturlands kemur fram að stúlkan telur að nærvera mannsins við skýrslugjöfina yrði henni mjög íþyngjandi og gæti haft áhrif á framburð hennar. Hefur réttargæslumaður hennar lagt fram greinargerð uppeldis- og afbrotafræðings hjá Barnahúsi, sem hefur haft brotaþola til meðferðar vegna andlegrar vanlíðunar sem rekja megi til ákæruefnisins. Í greinargerðinni kemur fram að stúlkan óttist mjög að sjá manninn og telji það verulega íþyngjandi fyrir sig. Í greinargerðinni segir orðrétt: „Eykur það enn frekar á vanlíðan og streitu þegar ákærði er viðstaddur skýrslugjöfina. Neikvæð áhrif í slíkum aðstæðum eru tvíþætt. Annars vegar er hætt við því að stúlkan geti ekki tjáð sig jafn vel um meint brot vegna kvíða og streitu yfir nærveru ákærða og getur það haft áhrif á framburð stúlkunnar sem verður að teljast mikilvægt sönnunargagn í málum sem þessum. Hins vegar er hætt við því að íþyngjandi aðstæður sem þessar geti haft mjög neikvæð áhrif á líðan stúlkunnar og ollið bakslagi sérstaklega hvað varðar áfallastreituröskun ...“ Samkvæmt ákærunni er manninum gefið að sök að hafa nauðgað stúlkunni, sem þá var 16 ára, og brotið gegn barnaverndarlögum með því að hafa haft samræði við hana gegn vilja hennar með því að notfæra sér að hún gat ekki spornað við samræðinu sökum svefndrunga og ölvunar og með þessu sýnt af sér ósiðlegt og ruddalegt athæfi. Í úrskurði Héraðsdóms Vesturlands kemur fram að þess verður gætt við aðalmeðferð að maðurinn geti fylgst með skýrslutökunni af brotaþola um leið og hún fer fram og spurningar verði lagðar fyrir brotaþola eftir því sem manninum þykir tilefni til.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira