Dagur og þýska landsliðið unnu Súperbikarinn | Myndir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. nóvember 2015 19:55 Dagur Sigurðsson vann bikar með þýska landsliðinu í dag. Vísir/Getty
Dagur Sigurðsson stýrði þýska handboltalandsliðinu til sigurs í Súperbikarnum sem er æfingamót sem þýska handboltalandsliðið heldur reglulega. Þýskaland vann 31-28 sigur á Slóvenum í lokaleik mótsins en þýska liðið hafði áður unnið 29-20 sigur á Brasilíu og 37-26 sigur á Serbíu. Þýska liðið lagði grunninn að sigrinum á Slóveníu með því að breyta stöðunni úr 7-6 í 15-8. Þýskaland var síðan 17-11 yfir í hálfleik. Jannik Kohlbacher (7 mörk) og Steffen Fäth (6 mörk) voru markahæstir í sigrinum á Slóveníu en Andreas Wolff var einnig mjög góður í markinu. „Við byrjuðum vel og náðum strax forystunni. Það hjálpaði okkur að vera á heimavelli en það verður mun erfiðara að mæta þeim í riðlakeppninni í Póllandi. Við megum ekki draga of miklar ályktanir frá þessum leik því Slóvenía hvíldi nokkra leikmenn í þessum leik," sagði Dagur Sigurðsson, í viðtali á heimasíðu þýska sambandsins. Þjóðverjar eru í riðli með Slóveníu á EM í Pólland sem fer fram í janúar á næsta ári. Þau mætast því í öllu mikilvægari leik eftir tvo mánuði. „Ég er heilt yfir ánægður með mótið en Slóveníuleikurinn var erfiðasti leikurinn. Liðið hélt góðri einbeitingu og leikmenn voru með rétta hugarfarið alla þrjá dagana," sagði Dagur. Slóvenar urðu í öðru sæti á mótinu en Brasilíumenn tryggðu sér þriðja sætið með því að vinna Serbíu í lokaleiknum. Hér fyrir neðan má sjá myndir af Degi Sigurðssyni í leiknum í dag.Vísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/GettyVísir/Getty
Handbolti Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira