Kynjamyndir kynjaumræðu Kristín A. Atladóttir skrifar 19. ágúst 2015 07:00 Umræðan um kynjahalla í íslenskri kvikmyndagerð tekur á sig fjölmargar myndir. Nýverið birtist grein í Stundinni undir yfirskriftinni ‘Hlutfall styrkja til kvenkyns kvikmyndagerðarmanna virðist vera réttlátt'. Röksemdirnar sem greinarhöfundur byggir niðurstöðu sína á felast nær eingöngu í þeirri fullyrðingu, sem hugsanlega er staðreynd líka, að kvenkyns kvikmyndagerðarmenn séu einungis 23% af stéttinni. Að úthlutunarhlutfallið endurspegli það. Greinarhöfundur vísar í dagblaðsviðtal sem heimild fyrir tölunum en í því viðtali kemur þó ekki fram hvaðan þær eru fengnar né hvaða skilgreiningar liggja að baki. Fjöldi fólks vinnur að kvikmyndagerð. Í kvikmynd í fullri lengd má gera ráð fyrir að um eða yfir 100 manns með u.þ.b. 40 -50 starfsheiti komi að framleiðslunni. Það eru hins vegar einungis 3 – 5 einstaklingar á 3 starfssviðum (starfsheitum) að meðaltali sem sækja um styrki til þróunar og framleiðslu. Það er vandkvæðum bundið að koma auga á með hvaða hætti fjöldi og kyn rafvirkja, smiða, hljóðmanna, búningahönnuða, saumakvenna, tökumanna, framleiðslustjóra o.sv.frv. hefur með úthlutnir úr Kvikmyndasjóði að gera. Að draga þá ályktun að hlutfall styrkja til kvenkyns kvikmyndagerðarmanna sé réttlátt því hlutfall umsókna/úthlutana sé uppá sömu tölu og hlufall kvenna sem starfar við kvikmyndagerð almennt er nokkuð sérkennilegt. Því miður er svipað uppi á tengingnum með tölulegar upplýsingar sem Kvikmyndamiðstöð sendi frá sér nýlega. Þar ægir öllu saman og ekki er gerður greinarmunur á eðli verkefna og þess að þau hafa mismikið vægi. Niðurstaðan virðist vera nokkuð hátt hlutfall úthlutana til kvenna í alsherjarúttekt án tillits til vægis en ósamræmið verður hrópandi þegar horft er til þess að þrátt fyrir þetta háa hlutfall rennur yfir 85% fjármagnsins til verkefni karla. Að auki kemur í ljós misvægi á milli kynja þegar skoðuð er flutningur á styrkjum af handritsstigi yfir á framleiðslustig. Tölurnar frá Kvikmyndamiðstöð ná yfir árin 2013 og 2014 en skýra ekki hvers vegna nú stendur yfir lengsta samfellda tímabil kvenkynsleikstjóralausrar frumsýningar frá upphafi né það að kvikmyndum kvenkynsleikstjóra hefur hlutfallslega fækkað umtalsvert frá því sem var fyrir aldamót. Og nú stendur fyrir dyrum málþing um kynjakvóta. Slík umræða styður þá viðleitni að vekja athygli á stöðu sem flestum, konum og körlum, þykir óásættanleg. Vandinn er þó að enn liggja ekki fyrir upplýsingar sem staðfesta að staðan sé sú sem hún sýnist vera. Það er ekki heldur stuðst við gögn sem skýra hver orsök kynjahallans, sem virðist vera til staðar, er. Það hlýtur að vera skilyrði fyrir úrbótum að aðgerðir miði að því að uppræta orsakir um leið og unnið er á birtingarmyndum vandans. Ef raunveruleg staða og orsök er ekki þekkt er útilokað að vita hvaða aðgerðir eru vænlegar til árangurs. Það er ekki flókið að komast að óumdeilanlegum niðurstöðum í tölfræði kvikmyndastyrkja á Íslandi, niðurstöðum þar sem forsendur eru ljósar sem og hvaða spurningum er verið að svara. Tilgangslaust er að fleygja ófullnægjandi og misvísandi tölum á milli sín og hártoga um málefni þar sem sýnileg niðurstaða liggur fyrir, en eðli og orsakir eru ókunnar. Stjórnvöld veita umtalsverðu almannafé til kvikmyndagerðar vegna þess efnahags- og menningarlega ávinnings sem af hlýst og sem skilar sér einum og öðrum hætti, beinum og óbeinum, aftur til skattgreiðenda. Tryggja verður að vel sé farið með féð og að tilgangi og markmiðum sé fylgt. Slíkt er á ábyrgð mennta- og menningarmálaráðuneytis í þessu tilfelli. Það er þess að standa fyrir stefnumótun, tryggja árangursríka úrvinnslu og að fylgjast með skilvirkni og árangri. Sem og að framfylgja jafnréttisstefnu stjórnvalda. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Á milli heima: blætisvæðing erlendra kvenna, klámdrifin viðhorf og stafrænt ofbeldi á Íslandi Mahdya Malik Skoðun Börnin okkar þurfa meira en dýrt parket og snaga úr epal Jóhann Ingi Óskarsson Skoðun Meira fjármagn til Rússlands en Úkraínu Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hverjir hagnast á húsnæðisvandanum? – Ungt fólk er blekkt og tíminn að renna út Arnar Helgi Lárusson Skoðun Þú eykur ekki tekjurnar þínar með því að taka lán Jón Ingi Hákonarson Skoðun Hættuleg hegðun Jón Pétur Zimsen Skoðun Hugmynd um að loka glufu - tilgangurinn helgar sennilega meðalið Gunnar Ármannsson, Skoðun Er ekki bara best að sleppa hagræðingu þegar kemur að líðan barna og ungmenna? Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Vegið að eigin veski Steinþór Ólafur Guðrúnarson Skoðun Könnun sýnir að almenningur er fylgjandi stjórnvaldsaðgerðum gegn ofþyngd og offitu barna Sigrún Elva Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig er þetta með erfðafjárskattinn? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Hverjir hagnast á húsnæðisvandanum? – Ungt fólk er blekkt og tíminn að renna út Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í blóma: Sókn og stöðugleiki Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Hugmynd um að loka glufu - tilgangurinn helgar sennilega meðalið skrifar Skoðun Börnin okkar þurfa meira en dýrt parket og snaga úr epal Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Vegið að eigin veski Steinþór Ólafur Guðrúnarson skrifar Skoðun Könnun sýnir að almenningur er fylgjandi stjórnvaldsaðgerðum gegn ofþyngd og offitu barna Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun „Það er kalt á toppnum“ – félagsleg einangrun og afreksíþróttafólk Líney Úlfarsdóttir,Svavar Knútur skrifar Skoðun Á milli heima: blætisvæðing erlendra kvenna, klámdrifin viðhorf og stafrænt ofbeldi á Íslandi Mahdya Malik skrifar Skoðun Hættuleg hegðun Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Þú eykur ekki tekjurnar þínar með því að taka lán Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Sjálfboðaliðar - Til hamingju með daginn! Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Meira fjármagn til Rússlands en Úkraínu Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lögmaður á villigötum – eða hvað? Agnar Þór Guðmundsson skrifar Skoðun Falleg herferð - Tómur kross Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Velferðarkerfi eða velferð kerfisins? Jódís Helga Káradóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin bregst fólkinu í landinu Helgi Héðinsson skrifar Skoðun Gera framtíðarnefnd varanlega! Damien Degeorges skrifar Skoðun Réttur brotinn á fötluðu fólki með fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarftu að vera mikils virði til að fá skattaafslátt? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lögmaður á villigötum Magnús M. Norðdahl skrifar Skoðun Hvers vegna er RÚV eitt um að sýna í verki andstöðu okkar gegn þjóðarmorðinu á Gaza? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Það er ekki eitt.. það er allt.. Eiður Ragnarsson skrifar Skoðun Öryggi farþega í leigubílum Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Hvað kostar vindorkan? Anna Sofía Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Að vera kona Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ekki líta undan Reyn Alpha Magnúsdóttir,Bjarndís Helga Tómasdóttir skrifar Skoðun Get ég látið vista barnið mitt í meðferð gegn vilja þess? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Eru grænu skattarnir ekki í besta falli gráir? Benedikt S. Benediktsson,Heiðrún Lind Marteinsdóttir,Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Fjárlög snúast um þjónustu við fólk Sigurþóra Bergsdóttir skrifar Sjá meira
Umræðan um kynjahalla í íslenskri kvikmyndagerð tekur á sig fjölmargar myndir. Nýverið birtist grein í Stundinni undir yfirskriftinni ‘Hlutfall styrkja til kvenkyns kvikmyndagerðarmanna virðist vera réttlátt'. Röksemdirnar sem greinarhöfundur byggir niðurstöðu sína á felast nær eingöngu í þeirri fullyrðingu, sem hugsanlega er staðreynd líka, að kvenkyns kvikmyndagerðarmenn séu einungis 23% af stéttinni. Að úthlutunarhlutfallið endurspegli það. Greinarhöfundur vísar í dagblaðsviðtal sem heimild fyrir tölunum en í því viðtali kemur þó ekki fram hvaðan þær eru fengnar né hvaða skilgreiningar liggja að baki. Fjöldi fólks vinnur að kvikmyndagerð. Í kvikmynd í fullri lengd má gera ráð fyrir að um eða yfir 100 manns með u.þ.b. 40 -50 starfsheiti komi að framleiðslunni. Það eru hins vegar einungis 3 – 5 einstaklingar á 3 starfssviðum (starfsheitum) að meðaltali sem sækja um styrki til þróunar og framleiðslu. Það er vandkvæðum bundið að koma auga á með hvaða hætti fjöldi og kyn rafvirkja, smiða, hljóðmanna, búningahönnuða, saumakvenna, tökumanna, framleiðslustjóra o.sv.frv. hefur með úthlutnir úr Kvikmyndasjóði að gera. Að draga þá ályktun að hlutfall styrkja til kvenkyns kvikmyndagerðarmanna sé réttlátt því hlutfall umsókna/úthlutana sé uppá sömu tölu og hlufall kvenna sem starfar við kvikmyndagerð almennt er nokkuð sérkennilegt. Því miður er svipað uppi á tengingnum með tölulegar upplýsingar sem Kvikmyndamiðstöð sendi frá sér nýlega. Þar ægir öllu saman og ekki er gerður greinarmunur á eðli verkefna og þess að þau hafa mismikið vægi. Niðurstaðan virðist vera nokkuð hátt hlutfall úthlutana til kvenna í alsherjarúttekt án tillits til vægis en ósamræmið verður hrópandi þegar horft er til þess að þrátt fyrir þetta háa hlutfall rennur yfir 85% fjármagnsins til verkefni karla. Að auki kemur í ljós misvægi á milli kynja þegar skoðuð er flutningur á styrkjum af handritsstigi yfir á framleiðslustig. Tölurnar frá Kvikmyndamiðstöð ná yfir árin 2013 og 2014 en skýra ekki hvers vegna nú stendur yfir lengsta samfellda tímabil kvenkynsleikstjóralausrar frumsýningar frá upphafi né það að kvikmyndum kvenkynsleikstjóra hefur hlutfallslega fækkað umtalsvert frá því sem var fyrir aldamót. Og nú stendur fyrir dyrum málþing um kynjakvóta. Slík umræða styður þá viðleitni að vekja athygli á stöðu sem flestum, konum og körlum, þykir óásættanleg. Vandinn er þó að enn liggja ekki fyrir upplýsingar sem staðfesta að staðan sé sú sem hún sýnist vera. Það er ekki heldur stuðst við gögn sem skýra hver orsök kynjahallans, sem virðist vera til staðar, er. Það hlýtur að vera skilyrði fyrir úrbótum að aðgerðir miði að því að uppræta orsakir um leið og unnið er á birtingarmyndum vandans. Ef raunveruleg staða og orsök er ekki þekkt er útilokað að vita hvaða aðgerðir eru vænlegar til árangurs. Það er ekki flókið að komast að óumdeilanlegum niðurstöðum í tölfræði kvikmyndastyrkja á Íslandi, niðurstöðum þar sem forsendur eru ljósar sem og hvaða spurningum er verið að svara. Tilgangslaust er að fleygja ófullnægjandi og misvísandi tölum á milli sín og hártoga um málefni þar sem sýnileg niðurstaða liggur fyrir, en eðli og orsakir eru ókunnar. Stjórnvöld veita umtalsverðu almannafé til kvikmyndagerðar vegna þess efnahags- og menningarlega ávinnings sem af hlýst og sem skilar sér einum og öðrum hætti, beinum og óbeinum, aftur til skattgreiðenda. Tryggja verður að vel sé farið með féð og að tilgangi og markmiðum sé fylgt. Slíkt er á ábyrgð mennta- og menningarmálaráðuneytis í þessu tilfelli. Það er þess að standa fyrir stefnumótun, tryggja árangursríka úrvinnslu og að fylgjast með skilvirkni og árangri. Sem og að framfylgja jafnréttisstefnu stjórnvalda.
Á milli heima: blætisvæðing erlendra kvenna, klámdrifin viðhorf og stafrænt ofbeldi á Íslandi Mahdya Malik Skoðun
Hverjir hagnast á húsnæðisvandanum? – Ungt fólk er blekkt og tíminn að renna út Arnar Helgi Lárusson Skoðun
Er ekki bara best að sleppa hagræðingu þegar kemur að líðan barna og ungmenna? Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Könnun sýnir að almenningur er fylgjandi stjórnvaldsaðgerðum gegn ofþyngd og offitu barna Sigrún Elva Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Hverjir hagnast á húsnæðisvandanum? – Ungt fólk er blekkt og tíminn að renna út Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Könnun sýnir að almenningur er fylgjandi stjórnvaldsaðgerðum gegn ofþyngd og offitu barna Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar
Skoðun „Það er kalt á toppnum“ – félagsleg einangrun og afreksíþróttafólk Líney Úlfarsdóttir,Svavar Knútur skrifar
Skoðun Á milli heima: blætisvæðing erlendra kvenna, klámdrifin viðhorf og stafrænt ofbeldi á Íslandi Mahdya Malik skrifar
Skoðun Réttur brotinn á fötluðu fólki með fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna er RÚV eitt um að sýna í verki andstöðu okkar gegn þjóðarmorðinu á Gaza? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Get ég látið vista barnið mitt í meðferð gegn vilja þess? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Skoðun Eru grænu skattarnir ekki í besta falli gráir? Benedikt S. Benediktsson,Heiðrún Lind Marteinsdóttir,Jóhannes Þór Skúlason skrifar
Á milli heima: blætisvæðing erlendra kvenna, klámdrifin viðhorf og stafrænt ofbeldi á Íslandi Mahdya Malik Skoðun
Hverjir hagnast á húsnæðisvandanum? – Ungt fólk er blekkt og tíminn að renna út Arnar Helgi Lárusson Skoðun
Er ekki bara best að sleppa hagræðingu þegar kemur að líðan barna og ungmenna? Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Könnun sýnir að almenningur er fylgjandi stjórnvaldsaðgerðum gegn ofþyngd og offitu barna Sigrún Elva Einarsdóttir Skoðun