Hefur unnið í þrettán Facebook-leikjum frá því í desember Gunnar Leó Pálsson skrifar 12. október 2015 07:30 Guðrún Benediktsdóttir er hér alsæl með hluta vinninganna sem hún hefur unnið. Hér er hún með snyrtitösku og vítamínpakka sem hún vann í Facebook-leikjum fyrir skömmu. fréttablaðið/anton brink „
Auðvitað er þetta heppni,“ segir hin fimmtuga Guðrún Benediktsdóttir en hún hefur nú unnið hvorki fleiri né færri en þrettán vinninga í hinum ýmsu Facebook-leikjum síðan í desember. Hún tekur þátt í öllum leikjum sem hún finnur en nennir samt ekki neinu veseni. „Ég tek bara þátt þegar ég þarf að kvitta og deila eða læka.“ Hún fékk snjallsíma í desember og byrjaði strax í kjölfarið að taka þátt í Facebook-leikjunum og sér svo sannarlega ekki eftir því. Hún hefur unnið vinninga sem eru eins fjölbreyttir og þeir eru margir. „Ég hef unnið meðal annars dáleiðslumeðferð, út að borða, súrmat, límmiða til að líma á vegg í barnaherbergi, skartgripi, snyrtidót og ég veit ekki hvað og hvað. Ég þarf að fara skrifa þetta niður svo ég muni þetta,“ segir Guðrún og hlær. Hún hvetur fólk til þess að taka þátt í Facebook-leikjum en hún hafði áður heyrt fólk tauta yfir því að það væri hreinlega ekki hægt að vinna í leikjum sem þessum. „Fólk hefur verið að tauta yfir því að þetta sé bara plat og djók og það sé ekki hægt að vinna en ég hef náð að afsanna það,“ bætir Guðrún við. Þess má til gamans geta að hún var nýbúin að vinna vítamínpakka í einum Facebook-leiknum þegar blaðamaður náði tali að henni. Þegar fólk tekur þátt í leikjum sem þessum er það yfirleitt frekar fjarstæðukenndur draumur að vinna í þeim, enda oft ansi margir sem taka þátt og líkurnar á að maður vinni alls ekki yfirþyrmandi. Í sumar komst hins vegar stúlka í fréttirnar þar sem hún þótti hafa verið einkar heppinn í að vinna í Facebook-leikjum og því áhugavert að sjá að lukkan leikur við fleiri einstaklinga í leikjunum, enda vinningurinn oftar en ekki fjarstæðukenndur draumur. Spurð út í hvaða vinningur hafa kætt hana mest segist hún muna eftir einu atviki sem hafi verið sérlega skemmtilegt. „Útvarpsmenn á Suðurland FM hringdu í mig í beinni útsendingu til að tilkynna mér að ég hefði unnið í leik hjá sér en það vildi svo skemmtilega til að ég átti afmæli þann dag. Þá vann ég fulla snyrtitösku af Estée Lauder-snyrtivörum sem var mjög skemmtilegt og lífgaði heldur betur upp á afmælisdaginn,“ útskýrir Guðrún létt í lundu. Það er gömul mýta sem segir að þeir sem heppnir eru í spilum séu óheppnir í ástum en hefur þessi mikla heppni í Facebook-leikjum haft áhrif á ástarmál Guðrúnar? „Ég er því miður mjög óheppin í ástum þannig að það er pínu sannleikur í þessari mýtu, allavega í mínu tilfelli,“ segir Guðrún og glottir. Hún er þó bjartsýn á að hún lokki ástarlukkudísirnar á sitt band á næstunni. Guðrún ætlar þó engan veginn að hætta að taka þátt í Facebook-leikjum og var einmitt að ljúka við að kvitta og deila í einum leiknum enn þegar blaðamaður talaði við hana.Þeir vinningar sem Guðrún hefur unnið:Hálsmenn og eyrnarlokkarDáleiðslunámskeiðSex skotglösÞrjár fötur af súrmatStærsta flugeldatertan frá Björgunarsveitinni í Kópavogi um áramótinLímmiðaborði til að setja á vegg í barnaherbergiNámskeið á vegum Game Tíví í tölvuleikjaspilunÚt að borða á GingerTveir bíómiðar í SmárabíóiHamborgaraveisla á Hamborgarabúllu TómasarSnyrtivörutaska full af snyrtivörum frá Estée Lauder Tvisvar sinnum unnið vítamínpakka
Tengdar fréttir Getur ekki hætt að vinna í Facebook-leikjum Verslunareigandinn Erna Margrét Oddsdóttir hefur vakið athygli fyrir það hve heppin hún hefur verið í hinum ýmsu Facebook-leikjum. Tekur tarnir í leikjum. 3. júlí 2015 09:30 Mest lesið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Sjá meira
Getur ekki hætt að vinna í Facebook-leikjum Verslunareigandinn Erna Margrét Oddsdóttir hefur vakið athygli fyrir það hve heppin hún hefur verið í hinum ýmsu Facebook-leikjum. Tekur tarnir í leikjum. 3. júlí 2015 09:30