Jörundur gerir það gott með Hjónabandssælu Guðrún Ansnes skrifar 11. júní 2015 11:30 Stuttmyndin var sýnd hér á landi á RIFF, Stockfish-hátíðinni og á Patreksfirði, þar sem hún er tekin upp.
Stuttmynd Jörundar Ragnarssonar, Hjónabandssæla, hlaut verðlaun fyrir besta handritið á hinni virtu Tel Aviv International Student Film Festival á sunnudag. Skammt er stórra högga á milli, því í byrjun mánaðarins var myndin valin sú besta í flokki erlendra stuttmynda á New York International Film Festival, og hafði áður hlotið verðlaun á kvikmyndahátíðum í Prag og Montreal. „Ég átti ekki von á neinu þegar ég var að gera þessa mynd, og hún var allt eins líkleg til að enda ofan í skúffu hjá mér,“ segir Jörundur en myndin er skólaverkefni hans við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum. Myndin hefur sumsé sannarlega fallið vel í kramið og er Jörundur nú önnum kafinn við að fylgja myndinni vítt og breitt um heiminn. „Myndin var valin til að vera með í prógramminu Les Nuits en Or, á vegum Frönsku kvikmyndaakademíunnar, og er þýdd yfir á sex tungumál. Ég er á túr núna ásamt þrjátíu og tveimur öðrum akademíuverðlaunaleikstjórum, svo sem BAFTA- og Óskars-verðlaunahöfum, þar sem við sýnum myndirnar,“ útskýrir Jörundur og viðurkennir að nú hlaðist verulega inn í reynslubankann. Mun Jörundur útskrifast um áramótin og segir stefnuna tekna beinustu leið heim á Klakann með fjölskylduna. „New York er ekki sérlega aumingjagóð, mikið hark hérna. Auk þess sakna ég plássins heima á Íslandi,“ segir hann að lokum.
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Sjá meira