Mönnun til framtíðar eða viðvarandi neyðarástand? Ólafur G. Skúlason skrifar 9. júní 2015 07:00 Nú ríkir gríðarlega alvarlegt ástand í heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga. Verkfall hjúkrunarfræðinga hefur nú staðið í hátt í tvær vikur með þeim afleiðingum dregið hefur verulega úr þjónustu við sjúklinga. Það hefur áhrif á líðan þeirra og meðferð auk þess að valda þeim auknum kvíða og áhyggjum. Við hjúkrunarfræðingar höfum líka áhyggjur af skjólstæðingum okkar og höfum í verkfallinu gert það sem í okkar valdi stendur til að tryggja öryggi þeirra með því að veita allar þær undanþágur sem teljast nauðsynlegar. Við höfum líka áhyggjur af framtíð hjúkrunarstéttarinnar og íslenska heilbrigðiskerfisins. Markmið hjúkrunarfræðinga með þessari baráttu er að tryggja Íslendingum öflugt heilbrigðiskerfi til framtíðar með virkri þátttöku hjúkrunarfræðinga. Nú þegar er skortur á hjúkrunarfræðingum og ekki næst að manna þær stöður sem eru í boði. Við blasir enn meiri skortur, það mikill að sú lágmarksmönnum hjúkrunarfræðinga sem er í gildi verkfallinu verður raunmönnun dagsdaglega í framtíðinni. Þá ríkir hér viðvarandi neyðarástand. Það má ekki gerast.Hryggjarstykkið Víða erlendis eru hjúkrunarfræðingar taldir hryggjarstykkið í uppbyggingu heilbrigðiskerfa. Sýnt hefur verið fram á að góð hjúkrun dregur bæði úr dánartíðni sjúklinga og fylgikvillum sjúkrahúslegu ásamt því að legutími sjúklinga styttist. Góð mönnun hjúkrunarfræðinga er því bæði kostnaðarlega hagkvæm og sjúklingum til góða. Þetta verða ráðamenn landsins að skilja. Semja þarf um nauðsynlegar launahækkanir fyrir hjúkrunarfræðinga. Það eitt tryggir að þeir velji að starfa við fagið sem þeir hafa menntað sig til og að þeir velji að starfa við hjúkrun á Íslandi til framtíðar. Hjúkrunarstarfið þarf að vera samkeppnishæft við aðrar starfsstéttir til að tryggja hér öfluga og örugga heilbrigðisþjónustu til framtíðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Skoðun Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Nú ríkir gríðarlega alvarlegt ástand í heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga. Verkfall hjúkrunarfræðinga hefur nú staðið í hátt í tvær vikur með þeim afleiðingum dregið hefur verulega úr þjónustu við sjúklinga. Það hefur áhrif á líðan þeirra og meðferð auk þess að valda þeim auknum kvíða og áhyggjum. Við hjúkrunarfræðingar höfum líka áhyggjur af skjólstæðingum okkar og höfum í verkfallinu gert það sem í okkar valdi stendur til að tryggja öryggi þeirra með því að veita allar þær undanþágur sem teljast nauðsynlegar. Við höfum líka áhyggjur af framtíð hjúkrunarstéttarinnar og íslenska heilbrigðiskerfisins. Markmið hjúkrunarfræðinga með þessari baráttu er að tryggja Íslendingum öflugt heilbrigðiskerfi til framtíðar með virkri þátttöku hjúkrunarfræðinga. Nú þegar er skortur á hjúkrunarfræðingum og ekki næst að manna þær stöður sem eru í boði. Við blasir enn meiri skortur, það mikill að sú lágmarksmönnum hjúkrunarfræðinga sem er í gildi verkfallinu verður raunmönnun dagsdaglega í framtíðinni. Þá ríkir hér viðvarandi neyðarástand. Það má ekki gerast.Hryggjarstykkið Víða erlendis eru hjúkrunarfræðingar taldir hryggjarstykkið í uppbyggingu heilbrigðiskerfa. Sýnt hefur verið fram á að góð hjúkrun dregur bæði úr dánartíðni sjúklinga og fylgikvillum sjúkrahúslegu ásamt því að legutími sjúklinga styttist. Góð mönnun hjúkrunarfræðinga er því bæði kostnaðarlega hagkvæm og sjúklingum til góða. Þetta verða ráðamenn landsins að skilja. Semja þarf um nauðsynlegar launahækkanir fyrir hjúkrunarfræðinga. Það eitt tryggir að þeir velji að starfa við fagið sem þeir hafa menntað sig til og að þeir velji að starfa við hjúkrun á Íslandi til framtíðar. Hjúkrunarstarfið þarf að vera samkeppnishæft við aðrar starfsstéttir til að tryggja hér öfluga og örugga heilbrigðisþjónustu til framtíðar.
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun