Tvinna saman sameiginleg áhugamál með útgáfufélaginu Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 8. júní 2015 09:00 Þær Sigrún Gyða Sveinsdóttir, Ágústa Gunnarsdóttir og Hildigunnur Sigvaldadóttir standa að útgáfufélaginu Prímus. Mynd/ElsaMaría
Útgáfufélagið Prímus er á vegum Skapandi sumarstarfa í Kópavogi og er markmið þess að tengja saman skáldskap og myndlist en stofnendur Prímuss, þær Sigrún Gyða Sveinsdóttir, Ágústa Gunnarsdóttir og Hildigunnur Sigvaldadóttir, eru allar nemendur í myndlist við Listaháskóla Íslands og Ágústa segir útgáfuna tvinna saman sameiginleg áhugamál þeirra. „Við erum allar að takast á við frásagnir í listaverkunum okkar þannig að þetta lá svolítið beint við þegar við vorum að tala um að sækja um hjá Skapandi sumarstörfum, þá kom þessi hugmynd upp.“ Þær vinkonur létu slag standa og stofnuðu útgáfuna og segir Ágústa þær stefna á að gefa út ung skáld og bjóða upp á skáldtengda listgjörninga, listaverk og útgáfu í sumar. „Við vorum að búa til póstljóð í vikunni og erum búnar að prenta þau og bera út í hús í Hlíðarhjalla í Kópavogi þar sem allt umstangið var í vikunni,“ segir Ágústa.Póstljóðið var prentað á póstkort og borið út í hús í Hlíðarhjalla í Kópavogi.Mynd/PrímusPóstljóðið sem borið var í hús er ljóðið Túristi á æskuslóðum og er eftir ljóðskáldið Ólaf Sverri Traustason en það var prentað, líkt og nafnið gefur til kynna, á póstkort og útilokar Ágústa ekki að þær muni framkvæma fleiri áþekka gjörninga í sumar. Að auki stefna þær á að gefa út ljóðahefti á tveggja vikna fresti sem hægt verður að fjárfesta í á vef útgáfunnar Primusutgafa.tumblr.com og mögulega á fleiri stöðum. „Við erum ennþá að sanka að okkur efni en við erum komnar með þónokkur skáld núna. Við birtum ekki eftir alla, erum með vald yfir því sem við birtum, en viljum endilega fá fleiri skáld til okkar,“ segir Ágústa að lokum og bendir áhugasömum ljóðskáldum á að hægt sé að hafa samband við útgáfuna í gegnum Facebook.com/primusutgafa en útgáfan stefnir á að halda starfsemi sinni áfram eftir að Skapandi sumarstörfum lýkur.
Mest lesið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Menning Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig Lífið Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Tónlist Fleiri fréttir Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum Sjá meira