Sameinaður sköpunarkraftur 6. júní 2015 10:00 Evangelos Tsagkouros er grískur hnífasmiður sem selur framleiðslu sína víða um heim. GVA
Það verður mikið um að vera í Íshúsi Hafnarfjarðar um helgina. Í dag taka íbúar þess þátt í Lifandi laugardegi í miðbæ Hafnarfjarðar og á morgun verður Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur og þá verða opnar vinnustofur og gestum og gangandi boðið að kynna sér starfsemina. „Í Íshúsi Hafnarfjarðar leigja einstaklingar og smærri fyrirtæki vinnustofur eða verkstæði undir ýmiss konar starfsemi í hinum og þessum skapandi greinum,“ segir Anna María Karlsdóttir mannfræðingur sem ásamt eiginmanni sínum, Ólafi Gunnari Sverrissyni, rekur Íshús Hafnarfjarðar. „Húsið okkar hér við smábátahöfnina var upprunalega reist undir fiskverkun og hér var starfrækt frystihús og netaverkstæði fram til ársins 2001. Nú hefur þessi fallega bygging fengið nýtt hlutverk en fyrir tæpu ári tókum við húsið á leigu og nú eru hér 23 vinnustofur þar sem starfa meðal annars grískur hnífasmiður, keramikhönnuðir, myndlistarkonur, tréskipasmiður, skósmiður, textílhönnuðir og innan hússins er einnig starfrækt verkstæði sem sérhæfir sig í þrívíddarskurði.“Jóhanna Hauks verður ásamt öðrum úr Íshúsinu á Lifandi laugardegi í miðbæ Hafnarfjarðar.Anna María segir meðbyrinn frá upphafi hafa verið mikinn og að áhugi á starfseminni fari síst minnkandi. „Við tökum á móti hópum í skipulagðar heimsóknir og kynnum starfsemina en gestum býðst einnig að kaupa vörur beint frá hönnuðum og listamönnum hússins. Við erum einnig með verslun sem er opin alla fimmtudaga en seinna á þessu ári opnum við verslun í nýju rými í húsinu og rýmkum þá afgreiðslutímann til muna.“Kraftmikið samfélag Hönnuðir og listamenn Íshússins mynda ákveðið samfélag enda eru rýmin opin. „Hér er mjög fjölbreytt starfsemi og bæði smærri fyrirtæki og einyrkjar sem sumir voru áður við eldhúsborðið heima hjá sér að skapa. Hér hefur myndast samstarf milli fólks á ólíkum sviðum og við höfum öll mikið gagn og gaman af þessu samfélagi okkar. Við deilum hugmyndum og þótt allir séu að vinna að sínu þá koma upp óvæntir vinklar sem hægt er að vinna með öðrum. Íshús Hafnarfjarðar væri ekkert án fólksins okkar og það er mikill kraftur í húsinu,“ segir Anna María og brosir. Lifandi laugardagur er viðburður sem verslunareigendur við Strandgötu í Hafnarfirði standa saman að og hafa þeir þá opið hjá sér fyrsta laugardag mánaðarins. Í dag verður auk þess flóamarkaður á Thorsplani og túninu á móti Eymundsson og skottsala verður á bílaplaninu á milli Eymundsson og verslunarmiðstöðvarinnar Fjarðar. Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á milli 13 og 17 á morgun í Íshúsi Hafnarfjarðar enda eru tengslin við sjómennsku og fiskverkun mikil og sterk. „Í tilefni dagsins verða vinnustofurnar hjá okkur opnar sem og verslun Íshússins og ef veður leyfir kemur starfsemin til með að flæða út og langleiðina niður að smábátahöfn,“ útskýrir Anna María og bætir við að hún vonist til að sjá sem flesta í Hafnarfirði um helgina en Hafnarfjarðarbær stendur fyrir veglegri dagskrá við Flensborgarhöfnina á Sjómannadaginn og hafnarsvæðið iðar jafnan af lífi.
Mest lesið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Frægir fundu ástina 2025 Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur Lífið „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Fleiri fréttir Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sjá meira