Kántríæðið snýr aftur 29. maí 2015 12:00 Jói hefur verið viðloðandi kántrítónlist og línudans í tuttugu ár og veit því sitthvað um stílinn. fréttablaðið/stefán „
Ég held að nú sé að verða uppsveifla í kántrígeiranum, línudansinum og tónlistinni,“ segir Jóhann Örn Ólafsson, eða Jói dans eins og hann er gjarnan kallaður, sem stendur fyrir kántríkvöldi á Spot í kvöld. „Ég hef verið að kenna línudans í tuttugu ár núna og langaði að fara af stað með svona kvöld, svo vonandi verður þetta fyrsta kántríkvöldið af mörgum.“ „Upp úr síðustu aldamótum var kántríhátíðin á Skagaströnd ein allra stærsta útihátíð sem haldin var um verslunarmannahelgi og svo fór að Skagstrendingar hættu að halda hátíðina því hún var einfaldlega orðin of stór,“ segir Jói. Hann bætir við að nú séu kántrísinnaðir Íslendingar eitthvað að ranka við sér aftur. „Þó hefur kántríið alltaf verið vinsælt við hin ýmsu tilefni, svo sem í þemaveislum og svoleiðis.“ En í kvöld verður dansinn í aukahlutverki. „Við ætlum vissulega að dansa í kvöld en aðaláherslan er lögð á tónlistina, þar sem amerísk kántrítónlist mun ráða ríkjum,“ útskýrir Jói og bætir við: „Fólk sem hefur gaman af kántrítónlist ætti að koma, fá sér bjór og hamborgara og svo geta þeir sem vilja dansa komið út á gólf, engin pressa.“ „Nú er því mál að draga fram hattana, pússa stígvélin, henda sér í skyrtuna og vera með,“ skýtur Jói að.Herlegheitin byrja klukkan 19.00 í kvöld og fara fram á Spot í Kópavogi, þar sem dansað verður fram eftir kvöldi. Aðgangseyrir er 3.000 krónur.
Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Sjá meira