Vinnslustöðin kaupir af Granda Svavar Hávarðsson skrifar 20. maí 2015 07:15 Tvö glæsileg skip leysa þrjú eldri af hólmi. mynd/hbgrandi
Sjávarútvegsfyrirtækið HB Grandi hefur selt Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum tvö eldri uppsjávarskip sín. Hluti af kaupunum er 0,68 prósent aflahlutdeild í loðnu en kaupverðið í allt er 2,1 milljarður króna. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki stjórna félaganna tveggja og ástandsskoðun skipanna en HB Grandi tilkynnti viðskiptin til Kauphallar Íslands á mánudagskvöld. Umrædd tvö skip eru Faxi RE 9, smíðaður 1987 í Póllandi, og Ingunn AK 150, smíðuð árið 2000 í Síle. Salan tengist kaupum HB Granda á tveimur nýjum uppsjávarskipum í Tyrklandi – þeim Venusi NS og Víkingi AK – en það fyrrnefnda er á siglingu til heimahafnar á Vopnafirði. Víkingur er væntanlegur til landsins síðar á þessu ári. Lundey NS, sem er þýsk smíði frá árinu 1960 og er þriðja uppsjávarveiðiskip HB Granda, hefur verið lagt og er skipið til sölu. HB Grandi lætur smíða þrjá ísfisktogara fyrir sig í Tyrklandi til viðbótar við fyrrnefnd uppsjávarveiðiskip. Tveir þeirra verða afhentir á næsta ári; Engey RE og Akurey AK. Síðasti ísfisktogarinn verður afhentur árið 2017 og mun bera nafnið Viðey RE.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Erlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fleiri fréttir Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Sjá meira