Gunnhildur Yrsa á skotskónum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. apríl 2015 19:36
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skoraði fyrir Stabæk sem vann 6-0 stórsigur á Medkila í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Gunnhildur skoraði fjórða mark leiksina á 67. mínútu og spilaði allan leikinn. Fyrr í dag tapaði Avaldsnes fyrir Trondheims-Örn á útivelli, 3-1. Hólmfríður Magnúsdóttir spilaði allan leikinn fyrir Avaldsnes en Þórunn Helga Jónsdóttir var á bekknum. Þá var Katrín Ásbjörnsdóttir í byrjunarliði Klepp sem vann Arna-Björnar á útivelli, 4-2. Þess má geta að María Þórisdóttir, dóttir Þóris Hergeirssonar handboltaþjálfara, var einnig í byrjunarliði Klepp en báðum var skipt af velli skömmu fyrir leikslok. Klepp hefur unnið báða leiki sína á tímabilinu til þessa en Stabæk fékk í kvöld sín fyrstu stig og er í sjötta sæti. Avaldsnes er einnig með þrjú stig. Í Svíþjóð hafði Rosengård betur gegn Hammarby, 5-0. Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn fyrir Rosengård og lagði upp eitt marka liðsins. Allir fjórir Íslendingarnir í liði Kristianstad voru í byrjunarliðinu er liðið tapaði fyrir Linköping á útivelli, 1-0. Margrét Lára Viðarsdóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir og Elísa Viðarsdóttir spiluðu allan leikinn en Ásgerður Stefanía Baldursdóttir var tekin af velli í hálfleik. Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Kristianstad. Rosengård er með fullt hús stiga eftir tvo leiki en Kristianstad með sex stig.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Fleiri fréttir Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Stoltur af argentíska liðinu Flækingur fótboltans enn á flakki á milli félaga Sjá meira