Byrjar daginn á tattúi Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 7. október 2015 11:00 „Ég fékk bítlaæði 1978 og svo pönk- og nýbylgjuæði í framhaldinu,“ segir Gunnar Lárus Hjálmarsson. Vísir/Pjetur „
Ég er nú ekkert með það á heilanum hvað ég er gamall. Enda lítið merkilegt að verða fimmtugur. Maður má bara þakka fyrir að hafa ekki verið uppi fyrir 1.000 árum og vera dauður löngu fyrir þann aldur úr einhverju rugli,“ segir Gunnar Lárus Hjálmarsson, þekktur sem doktor Gunni. Hann ætlar að byrja daginn á að fá sér tattú í fyrsta skipti. Telur sig nógu þroskaðan í slíkt. Það verða þrjár kúlur í brauðformi á öðrum hvorum handleggnum. Mikill ísmaður? „Já, þetta er það sem fjölskyldan er dálítið í – að fá sér ís. Það er skemmtilegt og lítið karlmannlegt. Maður vill vera sem minnst karlmannlegur enda er karlmennskan að leggja heiminn í rúst. Það gerir apaeðlið.“ Gunni segir afmælispartíið hafa verið haldið um síðustu helgi. „Konan varð fertug og vinir okkar á efri hæðinni líka svo það var haldið 170 ára afmæli. En ég verð að spila í dag, á afmælinu, í Lucky Records við Rauðarárstíg klukkan fimm. Þangað eru allir velkomnir,“ segir doktorinn sem var að gefa út plötu sem heitir Doktor Gunni í sjoppu. 50 eintök komu út á vínyl og búið að selja þau öll númeruð og áletruð. Gunni ólst upp í Kópavogi og bjó í sama húsi 22 fyrstu árin. Flutti svo í borgina 1988. Skyldi hafa verið tónlistariðkun á æskuheimilinu? „Nei, nákvæmlega engin, mín er algerlega sjálfsprottin enda finnst mér alltaf dálítið feik þegar krakkarnir fara að gera það sama og foreldrarnir. Það kom reyndar plötuspilari á heimilið 1976 og nokkrar plötur með. Ég fékk bítlaæði 1978, svo pönk- og nýbylgjuæði í framhaldinu og hef verið í þessum pælingum síðan.“
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira