Hvar er hægt að sitja úti á sólríkum dögum? 26. júní 2015 10:00 Íslendingar eiga það til að safnast saman á veitingahúsum bæjarins á sólardögum Vísir/Daníel
Þar sem sólin er byrjuð að vera duglegri að sýna sig og hitastigið hækkar er mikilvægt að vita hvert er hægt að fara til þess að sitja úti og fá sér mat eða drykk. Mörg veitingahús í Reykjavík eru með frábæra aðstöðu sem fá ekki nógu mörg tækifæri til að nýtast til útisetu. Þrátt fyrir að Austurvöllur og veitingastaðirnir þar í kring séu yfirleitt vinsælasti kosturinn þá hefur Reykjavík að geyma þó nokkrar perlur sem lesendur ættu að kanna betur á meðan sólin er hæst á lofti. Vísir hafði samband við nokkra Íslendinga til þess að forvitnast um hvert væri best að fara á sólardögum. Vonandi fá lesendur betri hugmynd um hvert hægt er að fara, hvort sem fólk er í sumarfríi eða langar að kíkja í sólina eftir langan vinnudag.Gauti ÞeyrVísir/StefánEmmsjé Gauti / Gauti Þeyr Tónlistarmaður „Ég verð reyndar í Danmörku um helgina, en þegar það er sól á Íslandi reyni ég alltaf að njóta þess á meðan hún er. Minn staður er auðvitað Prikið en þar fer maður oft í körfubolta í portinu."María Rut.Vísir/ArnþórBirkissonMaría Rut Kristinsdóttir Markaðsstjóri GoMobile „Heyrðu ég er svo heppin að vera að vinna á Austurstræti með svalir yfir Austurvöll þannig að á sólríkum dögum í Reykjavík sit ég bara úti á svölum og vinn. En ef ég er ekki að fara í sund eða göngutúr með fjölskyldunni fer ég á staðina hjá Austurvelli, Uno eða efri hæðina á Lebowski."Sigríður Thorlacius.Vísir/VilhelmSigríður Thorlacius Söngkona „Ef að það er sól úti þá finnst mér alltaf best að vera úti í garðinum hjá mér. Ef ég fer hinsvegar niður í bæ þá finnst mér gott að sitja úti á Kexinu eða á Óðinstorgi."Svavar Örn.Vísir/VilhelmSvavar Örn Svavarsson Hárgreiðslumeistari „Þegar veðrið er gott fer ég lang oftast á Jómfrúnna á Lækjartorgi og sit þar úti. Annars finnst mér líka gaman að fara á Kaffivagninn úti á Granda."Andrea RöfnMynd/AðsendAndrea Röfn Jónasdóttir Flugfreyja og módel „Í góðu veðri sest ég yfirleitt niður á Vegamótum, en pallurinn á Kex kemur líka sterkur inn."Önnur dæmi um staði sem má hafa í huga ef að lesendum langar að sóla sig í miðbænum um helgina eru: Loft Hostel, Iða Zimsen, Nora Magasin, Coocoo‘s Nest, Kjarvalsstaðir, Te og Kaffi í Eymundsson á Austurstræti, Cafe Babalú, Sjóminjasafnið, Reykjavík Roasters, Hressó og Cafe Sólon.
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Fleiri fréttir Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Sjá meira