Brandarakerling gærdagsins Jón Ásgeir Kalmansson skrifar 11. nóvember 2015 07:00 Fanney Birna Jónsdóttir blaðamaður skrifar pistil í Fréttablaðið þann 3. nóvember síðastliðinn undir fyrirsögninni „Brandarakallar morgundagsins“. Þar má á henni skilja að málflutningur þeirra sem setja sig upp á móti áfengisfrumvarpinu svokallaða verði þeim til ævarandi háðungar í framtíðinni. Í framtíð Fanneyjar Birnu mun nefnilega enginn skilja í því hvernig við getum sætt okkur við núverandi „forræðishyggju“ í áfengismálum. Hún rennir stoðum undir þessa sýn með því meðal annars að tala um „Mýtuna um að aðgengi auki áganginn og þar með vandræðin“ sem fylgja áfengisneyslu. Þessi staðhæfing er ósönnuð, segir Fanney Birna, „og margir sem setja mikinn fyrirvara við þá staðhæfingu“. Ég get varla verið einn um að finnast þetta vera undarlega veiklulegur og vanhugsaður málflutningur til stuðnings áfengisfrumvarpinu. Annars vegar er fólki sagt að það muni verða álitið hallærislegt ef það leggst gegn því og hins vegar eru vísindaleg gögn og niðurstöður sem að því lúta afgreidd með orðunum „mýta“, „ósannað“ og „margir setja mikinn fyrirvara“. Höfum í huga að orðið mýta þýðir ekki annað í þessu samhengi en uppspuni, hugarburður eða skröksaga. Slík framsetning minnir óþægilega á málflutning þeirra sem afneita loftslagsbreytingum, svo dæmi sé nefnt. Í skýrslu WHO frá árinu 2014 kemur fram að takmarkanir á aðgengi að áfengi séu ásamt skattlagningu og banni við auglýsingum árangursríkustu og ódýrustu meðulin til að vinna gegn skaðlegum áhrifum áfengisneyslu. Hvort ætli ráðleggingar WHO byggist á „mýtu“ eða á heildstæðu mati á helstu rannsóknum sem gerðar hafa verið í heiminum á þessu sviði? Og hvað segir það um áfengisfrumvarpið og málflutning Fanneyjar Birnu því til stuðnings að rök hennar skuli hverfast um haldlausa frasa af þessu tagi, auk þess að höfða til frumstæðs og þaggandi ótta fólks við að verða sér að athlægi? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Sjá meira
Fanney Birna Jónsdóttir blaðamaður skrifar pistil í Fréttablaðið þann 3. nóvember síðastliðinn undir fyrirsögninni „Brandarakallar morgundagsins“. Þar má á henni skilja að málflutningur þeirra sem setja sig upp á móti áfengisfrumvarpinu svokallaða verði þeim til ævarandi háðungar í framtíðinni. Í framtíð Fanneyjar Birnu mun nefnilega enginn skilja í því hvernig við getum sætt okkur við núverandi „forræðishyggju“ í áfengismálum. Hún rennir stoðum undir þessa sýn með því meðal annars að tala um „Mýtuna um að aðgengi auki áganginn og þar með vandræðin“ sem fylgja áfengisneyslu. Þessi staðhæfing er ósönnuð, segir Fanney Birna, „og margir sem setja mikinn fyrirvara við þá staðhæfingu“. Ég get varla verið einn um að finnast þetta vera undarlega veiklulegur og vanhugsaður málflutningur til stuðnings áfengisfrumvarpinu. Annars vegar er fólki sagt að það muni verða álitið hallærislegt ef það leggst gegn því og hins vegar eru vísindaleg gögn og niðurstöður sem að því lúta afgreidd með orðunum „mýta“, „ósannað“ og „margir setja mikinn fyrirvara“. Höfum í huga að orðið mýta þýðir ekki annað í þessu samhengi en uppspuni, hugarburður eða skröksaga. Slík framsetning minnir óþægilega á málflutning þeirra sem afneita loftslagsbreytingum, svo dæmi sé nefnt. Í skýrslu WHO frá árinu 2014 kemur fram að takmarkanir á aðgengi að áfengi séu ásamt skattlagningu og banni við auglýsingum árangursríkustu og ódýrustu meðulin til að vinna gegn skaðlegum áhrifum áfengisneyslu. Hvort ætli ráðleggingar WHO byggist á „mýtu“ eða á heildstæðu mati á helstu rannsóknum sem gerðar hafa verið í heiminum á þessu sviði? Og hvað segir það um áfengisfrumvarpið og málflutning Fanneyjar Birnu því til stuðnings að rök hennar skuli hverfast um haldlausa frasa af þessu tagi, auk þess að höfða til frumstæðs og þaggandi ótta fólks við að verða sér að athlægi?
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun