Arnór frábær með St. Raphael | Loks sigur hjá Erlingi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. nóvember 2015 19:59 Arnór í leik með St. Raphael. Vísir/AFP
St. Raphael fór upp að hlið PSG á toppi frönsku úrvalsdeildarinnar með tveggja marka sigri á Chartres á útivelli, 24-22. Arnór var næstmarkahæstur í liði St. Raphael með sex mörk en hann klikkaði aðeins á einu skoti í leiknum. Raphael Caucheteux var markahæstur með sjö mörk. Liðið hefur nú unnið sjö af fyrstu níu leikjum sínum í deildinni og er með fjórtán stig, jafn mörg og PSG sem á leik til góða.Langþráður sigur Refanna Í Þýskalandi unnu lærisveinar Erlings Richardssonar í Füchse Berlin sinn fyrsta sigur í deildinni síðan í byrjun október. Liðið hafði betur gegn Gummersbach á heimavelli, 26-24. Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson var annar markahæstu leikmanna Füchse Berlin með sjö mörk. Refirnir frá Berlín voru með væna forystu í upphafi síðari hálfleiks en útlitið dökknaði þegar Gummersbach minnkaði muninn í eitt mark og Füchse Berlin missti Fabian Wiede af velli með rautt spjald. Heimamenn héldu þó út og fögnuðu góðum sigri en með honum fór liðið upp í sjötta sæti deildarinnar en Füchse Berlin er með fimmtán stig, jafn mörg og Hamburg og einu minna en Kiel sem á leik til góða.Leó skoraði ekki Í Svíþjóð var Leó Snær Pétursson ekki á meðal markaskorara er lið hans, Malmö, vann Guif, 22-16. Kristján Andrésson er þjálfari Guif.
Handbolti Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Íslenski boltinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Íslenski boltinn „Þetta er smá spooky“ Körfubolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Verður Elvar liðsfélagi Hauks? „Það væri óskastaðan“ Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Sjá meira