Ásgeir Örn með níu mörk í tapi Nimes Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. nóvember 2015 22:20 Stórleikur Ásgeirs dugði ekki til gegn Aix. vísir/ernir
Fimmtán mörk frá Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Snorra Steini Guðjónssyni dugðu Nimes ekki til sigurs gegn Aix í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 33-28, Aix í vil. Ásgeir átti sinn besta leik í vetur, allavega hvað markaskorun varðar, en hann gerði níu mörk úr 17 skotum. Snorri skoraði sex mörk úr 14 skotum en hann hefur alls gert 77 mörk í 11 deildarleikjum í vetur. Arnór Atlason og félagar hans í Saint Raphael töpuðu dýrmætum stigum í toppbaráttunni þegar þeir lágu, 28-27, fyrir Cesson-Rennes á útivelli. Arnór skoraði fjögur mörk fyrir Saint Raphael í kvöld en liðið mætir Haukum í seinni leik liðanna í 3. umferð EHF-bikarsins um næstu helgi. Saint Raphael vann fyrri leikinn í Schenker-höllinni, 28-29. Meistarar Paris Saint-Germain unnu öruggan sjö marka sigur á Créteil á heimavelli, 34-27. Þetta var níundi sigur PSG í fyrstu 10 umferðunum en liðið er með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar. Markaskorið dreifðist vel hjá PSG í kvöld. Mikkel Hansen var markahæstur Parísarmanna með sjö mörk en þeir Sergiy Onufriyenko og Nikola Karabatic komu næstir með sex mörk hvor. Róbert Gunnarsson var ekki á meðal markaskorara PSG í kvöld.
Handbolti Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Með Haaland á toppi vinsældalistans Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira