Umræða á villigötum Grétar Jónasson skrifar 28. október 2015 07:00 Að undanförnu hefur mikilli umræðu verið hrundið af stað í fjölmiðlum um störf aðstoðarfólks (sölumanna) á fasteignasölum. Umræðan hefur einnig ratað inn á Alþingi. Málflutningi hefur verið hagað með þeim hætti að mistök hafi verið gerð í lagasetningu í vor þegar inn í ný lög um sölu fasteigna var sett með skýrum hætti hvaða störfum neytendur í fasteignaviðskiptum ættu að geta treyst að hinn löggilti fasteignasali sinnti sjálfur persónulega og um leið aðstoðarfólk hans sinnti ekki. Inn í hin nýju lög, sem er ein stærsta neytendalöggjöf landsins, voru með skýrum hætti settar niðurstöður úrskurða viðskiptaráðuneytisins og eftirlitsnefndar með fasteignasölum. Þessir úrskurðir hafa fallið undanfarin ár og varða alvarlegar athugasemdir hve langt aðstoðarfólk hefur gengið í störfum gagnvart neytendum. Það að lögin komi nú eins og þruma úr heiðskíru lofti og gerbreyti allri framkvæmd, eins og haldið er fram, er fjarri öllum sanni. Þrátt fyrir framangreint er nauðsyn að sýna tillitssemi gagnvart fólki sem starfar í greininni og vill mennta sig til starfans eða hefur þegar hafið nám. Félag fasteignasala hefur lagt til skýrar lausnir gagnvart þessum aðilum sem einfalt er að koma á í gegnum reglugerð jafnframt því sem mætt er helstu athugasemdum sem settar hafa verið fram. Með tillögunum er samþætt bóklegt nám og um leið verkleg störf viðkomandi nema á fasteignasölu. Mjög ríkar kröfur eru gerðar til að öðlast opinber réttindi sem löggiltur fasteignasali og fá heimild til að hafa milligöngu um almennt stærstu viðskipti fólks á lífsleiðinni. Byggjast þær kröfur m.a. á 90 eininga námi á háskólastigi auk a.m.k. eins árs reynslu í störfum á fasteignasölu. Markmið nýrra laga um sölu fasteigna kemur skýrt fram í 1. gr. nýju laganna, þ.e. að tryggja neytendavernd. Með festu í löggjöf í þessum málum er Alþingi að tryggja að markmið laganna um neytendavernd náist fram. Mikilvægt er í umræðu sem sett er í loftið um þessi mál að þess sé gætt að staðreyndum sé haldið til haga en málum ekki snúið á hvolf og látið sem engin forsaga sé að neinu hvað þessi mál varðar en því fer fjarri að svo sé. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes Skoðun Skoðun Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er mikilvægast? Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Sjá meira
Að undanförnu hefur mikilli umræðu verið hrundið af stað í fjölmiðlum um störf aðstoðarfólks (sölumanna) á fasteignasölum. Umræðan hefur einnig ratað inn á Alþingi. Málflutningi hefur verið hagað með þeim hætti að mistök hafi verið gerð í lagasetningu í vor þegar inn í ný lög um sölu fasteigna var sett með skýrum hætti hvaða störfum neytendur í fasteignaviðskiptum ættu að geta treyst að hinn löggilti fasteignasali sinnti sjálfur persónulega og um leið aðstoðarfólk hans sinnti ekki. Inn í hin nýju lög, sem er ein stærsta neytendalöggjöf landsins, voru með skýrum hætti settar niðurstöður úrskurða viðskiptaráðuneytisins og eftirlitsnefndar með fasteignasölum. Þessir úrskurðir hafa fallið undanfarin ár og varða alvarlegar athugasemdir hve langt aðstoðarfólk hefur gengið í störfum gagnvart neytendum. Það að lögin komi nú eins og þruma úr heiðskíru lofti og gerbreyti allri framkvæmd, eins og haldið er fram, er fjarri öllum sanni. Þrátt fyrir framangreint er nauðsyn að sýna tillitssemi gagnvart fólki sem starfar í greininni og vill mennta sig til starfans eða hefur þegar hafið nám. Félag fasteignasala hefur lagt til skýrar lausnir gagnvart þessum aðilum sem einfalt er að koma á í gegnum reglugerð jafnframt því sem mætt er helstu athugasemdum sem settar hafa verið fram. Með tillögunum er samþætt bóklegt nám og um leið verkleg störf viðkomandi nema á fasteignasölu. Mjög ríkar kröfur eru gerðar til að öðlast opinber réttindi sem löggiltur fasteignasali og fá heimild til að hafa milligöngu um almennt stærstu viðskipti fólks á lífsleiðinni. Byggjast þær kröfur m.a. á 90 eininga námi á háskólastigi auk a.m.k. eins árs reynslu í störfum á fasteignasölu. Markmið nýrra laga um sölu fasteigna kemur skýrt fram í 1. gr. nýju laganna, þ.e. að tryggja neytendavernd. Með festu í löggjöf í þessum málum er Alþingi að tryggja að markmið laganna um neytendavernd náist fram. Mikilvægt er í umræðu sem sett er í loftið um þessi mál að þess sé gætt að staðreyndum sé haldið til haga en málum ekki snúið á hvolf og látið sem engin forsaga sé að neinu hvað þessi mál varðar en því fer fjarri að svo sé.
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar
Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar
Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun