Mikkel Hansen skaut Snorra Stein af toppnum með stæl Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. október 2015 16:15 Mikkel Hansen og Snorri Steinn Guðjónsson. Vísir/EPA
Danska stórskyttan Mikkel Hansen skoraði fjórtán mörk fyrir Paris Saint-Germain í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær og er orðinn markahæsti leikmaður deildarinnar. Hansen er kominn með níu marka forskot á íslenska leikstjórnandann Snorra Stein Guðjónsson sem var samt markahæsti leikmaður deildarinnar fyrir fimmtu umferðina. Snorri Steinn var með fjögurra marka forskot á Hansen eftir fjóra leiki en náði aðeins að skora eitt mark úr níu skotum í jafnteflisleik Nimes á móti Créteil kvöldið áður. Mikkel nýtti sér það og gott betur en Daninn öflugi skoraði 14 mörk úr aðeins 15 skotum í átta marka sigri Paris Saint-Germain á Chambéry. Níu af mörkum Hansen komu reyndar af vítalínunni. Mikkel Hansen hefur skorað 51 mark í fyrstu fimm leikjum Parísarliðsins eða yfir tíu mörk að meðaltali í leik. Snorri Steinn hefur nú skorað 42 mörk í fimm leikjum eða 8,4 mörk að meðaltali í leik. Hann var búinn að skora 11 mörk eða fleiri í þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum. Snorri Steinn er með eins marks forskot á manninn í þriðja sæti listans sem er Nemanja Ilic hjá Toulouse. Nemanja Ilic skoraði níu mörk í fimmtu umferðinni. Ásgeir Örn Hallgrímsson, liðsfélagi Snorra Steins hjá Nimes, er næsthæstur af íslensku leikmönnunum í frönsku deildinni en hann er í 20. sæti með 22 mörk. Það er hægt að sjá markahæstu leikmenn með því að smella hér.
Handbolti Tengdar fréttir Snorri með stórleik í tapi Nimes Paris Saint-Germain bar sigurorð af Nimes, 36-32, í 1. umferð frönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld. 10. september 2015 20:33 Snorri Steinn magnaður í sigurleik Nimes | Öll úrslit kvöldsins Snorri Steinn Guðjónsson fór á kostum i fjögurra marka sigri Nimes á Toulouse í kvöld en Snorri setti alls tólf mörk í leiknum. 30. september 2015 21:30 Snorri markahæstur í Frakklandi Snorri Steinn Guðjónsson er markahæsti leikmaður frönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir fjórar umferðir. 1. október 2015 15:30 Snorri Steinn: Miklu skemmtilegra í Danmörku og Frakklandi en Þýskalandi Snorri Steinn Guðjónsson hefur farið vel af stað með Nimes í frönsku úrvalsdeildinni. 2. október 2015 11:30 Snorri Steinn tilnefndur sem leikmaður mánaðarins í frönsku úrvalsdeildinni Snorri Steinn Guðjónsson, leikmaður Nimes og íslenska landsliðsins í handbolta, er einn þriggja leikmanna sem kemur til greina sem leikmaður mánaðarins í frönsku úrvalsdeildinni í september. 6. október 2015 13:00 Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira
Snorri með stórleik í tapi Nimes Paris Saint-Germain bar sigurorð af Nimes, 36-32, í 1. umferð frönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld. 10. september 2015 20:33
Snorri Steinn magnaður í sigurleik Nimes | Öll úrslit kvöldsins Snorri Steinn Guðjónsson fór á kostum i fjögurra marka sigri Nimes á Toulouse í kvöld en Snorri setti alls tólf mörk í leiknum. 30. september 2015 21:30
Snorri markahæstur í Frakklandi Snorri Steinn Guðjónsson er markahæsti leikmaður frönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir fjórar umferðir. 1. október 2015 15:30
Snorri Steinn: Miklu skemmtilegra í Danmörku og Frakklandi en Þýskalandi Snorri Steinn Guðjónsson hefur farið vel af stað með Nimes í frönsku úrvalsdeildinni. 2. október 2015 11:30
Snorri Steinn tilnefndur sem leikmaður mánaðarins í frönsku úrvalsdeildinni Snorri Steinn Guðjónsson, leikmaður Nimes og íslenska landsliðsins í handbolta, er einn þriggja leikmanna sem kemur til greina sem leikmaður mánaðarins í frönsku úrvalsdeildinni í september. 6. október 2015 13:00