Snorri Steinn tilnefndur sem leikmaður mánaðarins í frönsku úrvalsdeildinni Kristinn Páll Teitsson skrifar 6. október 2015 13:00 Snorri Steinn í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Getty
Snorri Steinn Guðjónsson, leikmaður USAM Nimes, var í dag ásamt Mikkel Hansen, leikmanni Paris Saint Germain og Jure Dolenec, leikmanni Montpellier HB, tilnefndur sem leikmaður mánaðarins í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Snorri Steinn hefur byrjað tímabilið af miklum krafti en hann er markahæstur í deildinni eftir fjórar umferðir með 41 mark, fjórum mörkum meira en vinur hans og fyrrum samherji, Mikkel Hansen. Nimes hefur líkt og Snorri byrjað tímabilið vel en eftir tap í fyrstu umferð gegn Róberti Gunnarssyni og félögum í PSG hefur liðið unnið þrjá leiki í röð gegn Chambéry, Ivry og Toulouse. Nimes er í 3. sæti deildarinnar eftir fjórar umferðir, tveimur stigum á eftir toppliði PSG. Ásgeir Örn Hallgrímsson hefur sömuleiðis byrjað tímabilið af krafti í liði Nimes en Ásgeir er á sínu öðru tímabili hjá félaginu. Hefur hann alls skorað 17 mörk í leikjunum fjórum og er 22. markahæsti leikmaður deildarinnar. Áhugasamir geta skráð sig hér á vefsíðu franska handboltasambandsins og kosið Snorra Stein.
Handbolti Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu Fótbolti Fleiri fréttir FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Sjá meira