Guðjón Valur fær samkeppni hjá Barcelona | Alfreð missir lykilmann Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. nóvember 2015 14:44 Guðjón Valur Sigurðsson er Spánar- og Evrópumeistari. vísir/afp
Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, á von á mikilli samkeppni í vinstra horninu hjá Evrópumeisturum Barcelona verði hann áfram hjá liðinu á næstu leiktíð. Valero Rivera, hornamaður spænska landsliðsins, er á leið heim frá Nantes í Frakklandi, en hann er talinn, eins og Guðjón Valur, vera einn albesti hornamaður heims. Valero Rivera er á heimleið.vísir/afp Rivera, sem er sonur alnafna síns Valero Rivera, þjálfarans sem gerði Spán að heimsmeisturum 2013, er næst markahæstur í frönsku 1. deildinni með 83 mörk. Aðeins Mikkel Hansen, stórskytta Paris Saint-Germain, er búinn að skora meira eða 100 mörk. Nantes, sem er í sjötta sæti í Frakklandi, er búið að finna arftaka Rivera, samkvæmt handboltavefsíðunni handnews.fr. Það er Dominik Klein, hornamaður Þýskalandsmeistara Kiel. Klein er frá keppni þessa dagana eftir að slíta krossband undir lok síðasta tímabils, en þessi frábæri 32 ára gamli hornamaður hefur sjö sinnum fagnað Þýskalandsmeistaratitlinum með Kiel og þrisvar sinnum orðið Evrópumeistari. Áfram heldur Alfreð Gíslason að missa leikmenn en í sumar fóru frá liðinu Aron Pálmarsson, Filip Jicha, Rasmus Lauge og Waol Jallouz.
Handbolti Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti Fleiri fréttir FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Sjá meira