Systkini opna sýningu Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 9. júní 2015 11:00 Óskar, Fanney og Sigurður eru mikið handverskfólk og opna sýninguna Fimir fingur í Gerðubergi á morgun. mynd/Aðsend
Systkinin Óskar Henning Áldal, Fanney og Sigurður Valgarðsbörn opna á morgun sýninguna Fimir fingur í Boganum í Gerðubergi. Á sýningunni má berja augum fjölbreytta listmuni sem þau systkinin hafa búið til í gegnum árin en þetta er þeirra fyrsta sameiginlega sýning. „Þetta er sú fyrsta og eina, við gerðum þetta bara svona að gamni okkar og þetta kom einhvern veginn til af sjálfu sér,“ segir Óskar Henning glaður í bragði.Hnífur og laufabrauðsjárn eftir Sigurð.Mynd/KristínÞóraSystkinin eru ættuð úr Svarfaðardal og segir Óskar mikið af listhneigðu fólki upprunnið í dalnum og þau eigi því ekki langt að sækja áhugann á listsköpun og handverki.Ein af fjölmörgum kríum sem Óskar hefur smíðað úr þorskhausum.Mynd/KristínÞóra„Fanney systir mín sýnir myndverk og útskurð, sjálfur hef ég í áraraðir smíðað kríur úr þorskhausbeinum og það eru að minnsta kosti fjörutíu kríur, ýmist sitjandi á steinum eða fljúgandi á sýningunni,“ segir Óskar og bætir við: „Sigurður bróðir minn er mikill hnífasmiður og einnig smíðar hann laufabrauðsjárn og kleinujárn, bæði á hvaltennur, og síðan hefur hann smíðað laufabrauðsjárn úr kýrhorni.“ Greinilegt er að systkinunum er margt til lista lagt og ekki úr vegi að efna til sýningar á þeim listmunum sem þau hafa skapað í gegnum tíðina.Fanney sýnir myndverk og útskurð á sýningunni.Mynd/KristínÞóraÓskar segir óneitanlega gaman að því að opna sýningu ástamt systkinum sínum og hefur ánægju af handverkinu. „Það er líka gaman að því í ellinni, þegar maður er orðinn fullorðinn, að hafa nóg að starfa.“ Sýningin verður opnuð á morgun klukkan 17.00 í Boganum í Gerðubergi og stendur til 27. september næstkomandi.
Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Fleiri fréttir „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Sjá meira