Bein útsending: Kosningarnar í Bretlandi Atli Ísleifsson skrifar 7. maí 2015 17:37 Ed Miliband, leiðtogi Verkamannaflokksins og David Cameron, forsætisráðherra og leiðtogi Íhaldsflokksins. Vísir/AFP
Fleiri milljónir Breta hafa mætt á kjörstað í dag en þar sem meðal annars er kosið til þings. Kjörstöðum verður lokað klukkan 21 að íslenskum tíma og er búist við að niðurstöður liggi fyrir í fyrstu kjördæmunum um klukkan 23. Reiknað er með að endanlegar niðurstöður kosninganna liggi fyrir síðdegis á morgun. Fylgjast má með beinni útsendingu bresku sjónvarpsstöðvarinnar Sky að neðan.Flókin staða bíður Allt stefnir í óvenju flókna stöðu í breskum stjórnmálum þegar búið verður að telja úr kjörkössunum. Kosið er um 650 sæti á breska þinginu, um níu þúsund sæti í sveitarstjórnum, auk þess að borgarstjórar verða kosnir í Bedford, Copeland, Leicester, Mansfield, Middlesbrough og Torbay. Alls eru um 50 milljónir manna á kjörskrá. Verkamannaflokki Eds Miliband hefur ekki tekist nýta sér fimm ár í stjórnarandstöðu til að tryggja sér sigur. Honum er ekki spáð nema rúmlega þriðjungi atkvæða, eða álíka miklu og Íhaldsflokki Davids Cameron, sem hefur skapað sér óvinsældir með ströngum sparnaðaraðgerðum sem ekkert lát er sjáanlegt á.Frjálslyndir farið illa úr stjórnarsamstarfinu Samstarfsflokkurinn í samsteypustjórn Camerons, Frjálslyndi flokkurinn, hefur farið illa út úr stjórnarsamstarfinu og virðist ekki ætla að fá nema níu prósent atkvæða, eða þar um bil. Nick Clegg, leiðtogi frjálslyndra, getur því varla einu sinni boðið Cameron eða Miliband upp á samstarf í samsteypustjórn, því tveggja flokka stjórn með frjálslyndum nær varla þingmeirihluta. Þá kemur væntanlega til kasta Skoska þjóðarflokksins, sem hefur samkvæmt skoðanakönnunum þvílíka yfirburðastöðu í Skotlandi að Nicola Sturgeon, leiðtogi flokksins, getur ráðið úrslitum um það hvort næsta stjórn verður starfhæf. Og hún hefur heitið því að koma Íhaldsflokknum frá völdum.Kemur saman 18. maí Nýtt þing kemur saman 18. maí næstkomandi. Hafi Cameron þá ekki tekist að mynda stjórn er ætlast til þess að hann segi af sér. Ný stjórn þarf svo að vera tilbúin með lista yfir frumvörp, sem lögð verði fram á þingi næsta árið, fyrir 27. maí. Að minnsta kosti er fastlega reiknað með því að Elísabet drottning lesi þennan dag upp þennan lista í hinni árlegu ræðu sinni á þinginu, sem jafnframt er stefnuræða stjórnarinnar. Kosningakerfið í Bretlandi hefur oftast tryggt annaðhvort Íhaldsflokknum eða Verkamannaflokknum hreinan þingmeirihluta. Þetta virðist þó vera að bregðast annað skiptið í röð. Í síðustu kosningum, árið 2010, náði hvorugur flokkurinn meirihluta, þannig að Íhaldsflokkurinn átti ekki annars kost en að mynda samsteypustjórn með Frjálslynda flokknum. Þetta virðist sumsé ætla að endurtaka sig í dag. Frá því nokkru fyrir seinna stríð er aðeins eitt annað dæmi um að þingkosningar í Bretlandi hafi ekki skilað hreinum þingmeirihluta neins flokks, en það var árið 1974.
Tengdar fréttir Sturgeon stefnir í lykilstöðu Þótt Skotar hafi í haust fellt helsta baráttumál Skoska þjóðarflokksins í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðskilnað frá Bretlandi þá stefnir allt í að flokkurinn hreppi nánast öll þingsæti Skota á breska þinginu í þingkosningunum næsta fimmtudag. 2. maí 2015 10:00 Bretar kjósa til þings Fylgið virðist ætla að skiptast hnífjafnt milli Íhaldsflokksins og Verkamannaflokksins í þingkosningum í Bretlandi, sem haldnar verða í dag. Hvorugum flokknum er spáð hreinum þingmeirihluta, ef marka má skoðanakannanir. 7. maí 2015 07:00 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira
Sturgeon stefnir í lykilstöðu Þótt Skotar hafi í haust fellt helsta baráttumál Skoska þjóðarflokksins í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðskilnað frá Bretlandi þá stefnir allt í að flokkurinn hreppi nánast öll þingsæti Skota á breska þinginu í þingkosningunum næsta fimmtudag. 2. maí 2015 10:00
Bretar kjósa til þings Fylgið virðist ætla að skiptast hnífjafnt milli Íhaldsflokksins og Verkamannaflokksins í þingkosningum í Bretlandi, sem haldnar verða í dag. Hvorugum flokknum er spáð hreinum þingmeirihluta, ef marka má skoðanakannanir. 7. maí 2015 07:00