Verkfall eftir verkfall Helga María Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur skrifar 19. október 2015 10:05 Á meðan starfsmenn heilbrigðiskerfisins vinna allir sem einn við að halda kerfinu gangandi, segir Landlæknir að það sé fáheyrt að menn beiti fyrir sig sjúklingum með þessum hætti (þ.e. verkfalli). Þar kemur mín vangavelta, er hann að tala um mig eða sig. Ég stend mína vinnu dag eftir dag og eftir launaleiðréttinguna eins og enn er verið að halda fram að hafi átt sér stað, eru grunnlaunin mín 362 þúsund. Ég hækkaði um 28 þúsund krónur í heildarlaunum, sem gefur ekki mikið í vasann og á að kalla þetta leiðréttingu. Í fyrsta lagi þá var ekki samið við okkur, heldur var skipaður á okkur Gerðardómur sem setti út tölu og fengum við síðan að velja hvort við myndum samþykkja hana eða Margir drógu umsóknina sína til baka en þó voru um 80 hjúkrunarfræðingar sem gerðu það ekki samkvæmt minni vitund, sem er mikill missir fyrir heilbrigðiskerfið. Ég var ein af þeim sem dró umsóknina mína til baka en í leiðinni minnkaði ég starfshlutfallið mitt úr 80% niður í 25% og er byrjuð að mennta mig á allt öðru sviði. Margir eru ósáttir eftir að fyrsti launaseðillinn birtist eftir launahækkunina þegar í ljós kom svart á hvítu hversu litlu munaði á útborguðum launum. Ekki minnkar álagið á spítalanum og getur því vel verið að einhverjir endurskoði stöðu sína og gangi út síðar, hvort sem það er á þessu ári eða næsta. En það er einmitt það sem stjórnendur spítalans þurfa að taka inn í reikninginn. Þeir þurfa að hugsa hvaða langtímaáhrif verkföllin hafa á heilbrigðiskerfið. Ég er sannfærð um að því lengri tíma sem tekur að semja við hvert stéttarfélag fyrir sig, því verri afleiðingar hefur það á heilbrigðiskerfið. Það á ekki að láta vikur líða á milli funda og koma síðan með óásættanlegar tölur sem enginn vildi samþykkja og siga síðan Gerðardómi á starfsmenn sína. Þessi vinnubrögð eru ekki til sóma.gandi kemur tengslanet sem nð þau ga langtthvað vittlaust.ina þegar una fyrir það kerfinu gangandi kemur tengslanet sem nð Ef stjórnendum spítalans er ekki skemmt við að takast á við enn eitt verkfallið hvernig væri þá að koma í veg fyrir það. Semja við starfsmenn sína sem eru alltaf að bæta við sig þekkingu og reynslu og launa þeim fyrir það. Þegar næstum hver einasti starfsmaður heilbrigðiskerfisins er búinn að fara í verkfall á innan við ári þá getur ekki annað verið en að stjórnendur séu að gera eitthvað rangt. Sem dæmi þá standa sjúkraliðar nú í verkfalli. Þeir vinna mjög mikilvæga en oft vanmetna vinnu. Sem dæmi aðstoða þeir fólk við athafnir daglegs lífs, eins og að fara fram úr rúminu, gefa fólki að borða, aðstoða við böðun, klæðnað og göngu. Þetta eru grunnþarfir einstaklinga en ekki eru allir færir um að framkvæma þessar athafnir hjálparlaust. Sjúkraliðar stíga þá inn og veita þessa mjög mikilvægu þjónustu sem fólk er mjög þakklátt fyrir. Starfinu fylgir oft líkamlegt álag og einnig vinna þeir allar vaktir, allt árið um kring. Sjúkraliðar eiga skilið að fá borgað fyrir þessa lífsnauðsynlegu vinnu. Lögreglumenn eru einnig langt undir mannsæmandi launum. Sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttökunni í Fossvogi hef ég verið svo heppin að fá að vinna með lögreglunni töluvert. Það er einn lögreglumaður á vakt á næturnar hjá okkur um helgar, auk þess sem hún kemur um leið og við köllum hana til og aðstoðar okkur við erfið mál. Oft á ofbeldi sér stað þegar við köllum eftir aðstoð og þá er alltaf sama sagan. Lögreglan hlífir mér og gengur beint í málið mjög faglega. Ég geng einnig með öryggishnapp á mér í vinnunni og það eina sem ég þarf að gera er að ýta á takka til þess að lögreglan sé tilbúin að aðstoða. Lögreglan á skilið að fá mannsæmandi laun. Fólk fer ekki í verkfall að gamni sínu heldur er það síðasta úrræði til þess að láta í sér heyra. Af hverju hlusta stjórnvöld ekki á okkur? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið 37 milljarðar gefins á silfurfati Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir Skoðun Halldór 09.08.2025 Halldór Úr skotgröfum í netkerfin: Netárásir á innviði Vesturlanda Ýmir Vigfússon Skoðun Er nóg að starfsfólkið sé gott? Sigrún Huld Þorgrímsdóttir Skoðun Lagaleg réttindi skipta máli Kári Garðarsson Skoðun Við stöndum þeim næst en fáum ekki rödd Svava Bjarnadóttir Skoðun Svargrein: Ísland á víst að íhuga aðild að ESB Ágúst Ólafur Ágústsson Skoðun Aukum faglegan stuðning í skólum borgarinnar Þorleifur Örn Gunnarsson Skoðun Næturstrætó um helgar í og úr Hafnarfirði Katrín Ósk Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar Skoðun Baráttan um þjóðarsálina Alexandra Briem skrifar Skoðun Lagaleg réttindi skipta máli Kári Garðarsson skrifar Skoðun Pride and Progress: Advancing Equality Through Unity Clara Ganslandt skrifar Skoðun Hver rödd skiptir máli! Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Sýnum þeim frelsið Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfing skiptir öllu máli í Parkinson Helga G Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hinsegin í vinnunni Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Við stöndum þeim næst en fáum ekki rödd Svava Bjarnadóttir skrifar Skoðun Sumarorlofið fór í baráttuna fyrir barni - er það sanngjarnt? Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisstefnan og frelsið Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Sjö staðreyndir í útlendingamálum Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar fjölbreytileikinn verður ógn: Afneitun, andstaða og ótti við hið mannlega Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Einmanaleiki: Skortir þig tengsl við þig eða aðra? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Svargrein: Ísland á víst að íhuga aðild að ESB Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Fjölbreytni í endurhæfingu skiptir máli Hólmfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Sumarfríinu aflýst Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Úr skotgröfum í netkerfin: Netárásir á innviði Vesturlanda Ýmir Vigfússon skrifar Skoðun Fordómar gagnvart hinsegin fólki – Reynslusaga Geir Gunnar Markússon skrifar Skoðun „Er allt í lagi?“ Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Göngum í Haag hópinn Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Kirkjuklukkur hringja Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Gerir háskólanám þig að grunnskólakennara? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð skapar ekki frið Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Íslenska stóðhryssan og Evrópa Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvammsvirkjun – Skyldur ráðherra og réttur samfélagsins Eggert Valur Guðmundsson skrifar Skoðun Norska leiðin er fasismi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Um mýkt, menntun og von Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Höfum alla burði til þess Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Tímabær rannsókn dómsmálaráðuneytisins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ósýnilegur veruleiki – Alvarlegt ME og baráttan fyrir skilningi Helga Edwardsdóttir skrifar
Skoðun Sumarorlofið fór í baráttuna fyrir barni - er það sanngjarnt? Sigríður Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Þegar fjölbreytileikinn verður ógn: Afneitun, andstaða og ótti við hið mannlega Haukur Logi Jóhannsson skrifar